Blysið : skólablað Gagnfræðaskóla Austurbæjar - 01.04.1940, Qupperneq 17
B L Y S I Ð
15
og málma, reikna ég á kr.
13,50. 55 kg. af mannakjöti
reiknað á 7 krónur hvert kg.
Ég get ekki reiknað það á minna
— vegna þess, að svínakjöt
kostar núna kr. 6,50. Beinagrind
mína reikna ég á 5 krónur alla.
Það er ódýrt verð og athugandi
fyrir beinaverksmiðjur. Ég á 2
alfatnaði, ca. 26 króna virði. —
Eina skó á ég, reyndar er hæll-
inn farinn af öðrum þeirra. Þeir
eru svona 5 krónu virði. Ég á
einn rykugan rykfrakka. Það
vantar á hann eina tölu. Segj-
um að hann sé kr. 9,75 að verð-
leika. Þá á ég eina gamla kom-
móðu, ómálaða, sem vantar
hálfa aðra löpp á, Hún er ekki
meira virði en svo sem 6 kr.
Einn kollóttan stól á ég, og sem
sönnun fyrir réttum verðleika
hans, skal ég geta þess, að mér
hafa verið boðnir 75 aurar fyrir
hann í eldivið.Gamlan „bedda“,
sem vekur mig alltaf á nóttunni
með bölvuöu ískrinu, erfði ég
eftir hann afa minn, og virði ég
hann á 10 krónur. Auk þess á
ég nokkur tölublöð af Tímanum
frá árinu 1933, og þau eru nú
ekki túskildingsvirði. Þetta eru
nú eignirnar upptaldar, og læt
ég yður að reikna þær saman.
Gjöld mín eru engin, því að
bærinn myndi borga þau, ef ein-
hver væru. Tekjur engar, bær-
inn sér um það. Svo er allt
upp talið með „kurt og pí.“
Yerið þér svo ætíð hjartan-
lega blessaðir og sælir, guði be-
faldir með von um, að þetta nægi
yður í bráð.
Yðar eilíflega
Feigur Fallandason.“
Stríðsráðstöfun.
Ritstjórn „Blyssins“ gerir eft-
irfarandi að tillögu sinni:
Að kvenþjóðin reyni að spara
sem mest varaliti, púður (ekki
skotpúður), augnaplokkara og
allt þess háttar.
Auk þess, sem þetta mundi
spara gjaldeyri að miklum mun,
þá er hægt að komast hjá öllum
þeim vandræðum, sem lýst er á
bls. 10 í grein „Skólastelpunn-
ar“, það er að segja, að meta
kvenfólkið ekki sem einskonar
stimpil, enda mundi stimpil-
gjald það verða meira en 3á
af þúsundi eða broti úr þús-
undi.
Ritnefnd:
Jón Emils,
Björn Helgason.
Sigurjón Ingibergs.
Leiðbeinandi:
Sveinbj. Sigurjónsson, kennari.
Alþýðuprentsmiðjan h/f.