Flug : tímarit um flugmál - 01.07.1955, Blaðsíða 5
og áhöfn. Þá var einnig drykkjai'vatn og rnatur.
Flutt voru um 4 kg. af pósti í þessari fyrstu flug-
ferð, en vörusendingar voru engar. Flugskilyrði
voru allsæmileg og var flogið í 7000 feta hæð alla
leiðina. Til Largs var komið kl. 13,31 (GMT), og
hafði þá ferðin frá Reykjavík tekið nákvæmlega
6 klukkustundir og 4 mínútur. í Largs tók yfir-
maður flughersins þar á staðnum á móti flugvél-
inni og bauð áhöfn og farþega velkomna úr þess-
ari fyrstu ferð íslenzkrar flugvélar milli íslands og
Skotlands. Einnig voru þar mættir fulltrúar frá
Scottish Airlines. Skoðuðu skozkir flugbátinn síð-
an hátt og lágt og létu í ljós hrifningu yfir útbún-
aði hans. íslenzku flugmönnunum var því næst
boðið til tedrykkju og að henni lokinni var ekið
til gistihúss nálægt Prestvíkurflugvelli.
Næsta dag hélt flugbátur Flugfélags íslands frá
Skotlandi áleiðis til íslands og lenti hann á Skerja-
firði um fimmleytið eftir nákvæmlega sex tíma
flug. Engir farþegar voru með flugvélinni heim til
íslands. Við flughöfnina í Skerjafirði voru mættir
til að bjóða áhöfn flugbátsins velkomna heim, þeir
Örn Ó. Johnson, framkvæmdastjóri Flugfélags Is-
lands, Agnar Kofoed-Hansen, þáverandi lögreglu-
stjóri, og Erling Ellingsen, þáverandi flugmála-
stjóri. Strax og áhöfnin var komin í land, var hald-
ið að Hótel Borg. Þar skýrði Jóhannes Snorrason
flugstjóri frá ferðalaginu og rómaði hann mjög
móttökur Skota. Þá sagði Jóhannes ennfremur, að
þeir félagar hefðu orðið þess varir, að mikill áhugi
væri fyrir því hjá Skotum, að farþegaflug rnilli
Skotlands og íslands gæti hafist sem fyrst. Voru
þeir spurðir að því, hvenær þeirra væri að vænta
næst.
DANMERKURFLUG FYRIRHUGAÐ.
Örn Ó. Johnson tók næstur til máls og bauð gesti
og áhöfn velkomna. Drap hann lítillega á framtíð-
aráætlun félagsins í sambandi við milillandaflug.
Kvað hann að svo stöddu máli vera erfitt að gefa
tæmandi upplýsingar þar að lútandi, þar sem áætl-
anir félagsins hefðu raskast við missi Beachcraftvél-
arinnar (hún brann uppi í Borgarfirði skömmu
áður). Yrði félagið nú að nota Katalínaflugbát-
inn til farþegaflugs hér innanlands til þess að geta
fullnægt eftirspurninni. Þá gat framkvæmdastjór-
inn þess, að Flugfélag íslands hefði nú þegar athug-
að möguleika á að hefja farþegaflug til Danmerk-
ur, en milligöngu í því máli hefði utanríkisráðu-
neytið haft með höndum. Þessu næst tók til máls
Agnar Kofoed-Hansen fyrir hönd félagsstjórnar. I
ræðu sinni benti hann á, að þessi fyrsta ílugferð
væri aðeins áfangi á langri leið. Ræddi hann um
nauðsyn þess, að íslendingar sjálfir önnuðust flug-
samgöngur milli íslands og annarra landa. Annar
Bretanna, sem var með í ferðinni, Laidlaw, flug-
foringi, þakkaði þann heiður, sem sér og félaga
sínunr hefði verið sýndur með því að vera sendir
í áhöfn með fyrstu íslenzku flugvélinni, sem færi í
farþegaflug milli landa.
Eins og ráð hafði verið fyrir gert, voru farnar
tvær flugferðir til viðbótar með Katalínaflugbáti
Flugfélags íslands milli íslands og útlanda sumarið
1945. Önnur ferðin var farin á tímabilinu 22.-27
ágúst og hin þriðja 7.—20 sept. Báðar þessar ferðir
voru farnir frá Reykjavík til Largs og Kaupmanna-
hafnar, en nokkrar tafir urðu í ferðunum sökum
óhagstæðs veðurs. Samtals flutti flugbátur Flugfé-
lags íslands 56 farþega milli íslands, Skotlands og
Danmerkur í þessum þremur reynsluflugferðum
sumarið 1945.
í maímánuði 1946 gekk Flugfélag íslands frá
samningum um leigu á 24 sæta Liberator flugvél af
Scottish Airlines. Var fyrsta ferðin farin 27. maí,
og voru til að byrja með farnar þrjár ferðir á
viku milli Reykjavíkur og Prestvíkur, og tvær ferð-
ir til Kaupmannahafnar. Ferðum var þó fækkað
yfir vetrarmánuðina. í september sama ár voru farn-
ar tvær íerðir milli Reykjavíkur og New York og
notaðar Liberator-flugvélar til þeirra ferða. Flug-
ferðunr var haldið uppi milli íslands, Skotlands og
Danmerkur með þessum leiguflugvélum Flugfélags
íslands fram í júlí 1948, er félagið eignaðist „Gull-
faxa", fyrstu Skymasterflugvél sína.
Flugmennirnir Jóhannes Snorrason og Smári Karlsson
um borð i Katalínajlugbáti F. í. eftir að þeir höfðu lokið
fyrsta islenzka millilandafluginu með farþega.
FLUG - 3