Flug : tímarit um flugmál - 01.07.1955, Side 6

Flug : tímarit um flugmál - 01.07.1955, Side 6
Ahöfn Katalínaflugbáts F. í. i fyrstu ferðinni til Kaup- mannahafnar í ágúst 1945. F. v.: Magnús Guðmundsson, Jóhann Gislason, Sigurður Ingólfsson og Jóh. Snorrason. „GULLFAXI“ KEMUR TIL SÖGUNNAR. Með komu „Gullfaxa" hingað til lands 8. júlí 1948, er enn brotið blað í sögu millilandaflugs F'lug- félags íslands. Nýtt tímabil hefst og félaginu ér nú unnt að víkka enn athafnasvið sitt. Loftleiðir h.f. höfðu keypt Skymasterflugvélina „Heklu“ í júní 1947 og ári seinna eignaðist félagið svo „Geysi“, sem var af sömu gerð. Á miðju sumri 1948 áttu því íslendingar þrjár stórar millilandaflugvélar. Þess- ir stóru „silfurfuglar“ héldu svo uppi áætlunar- flugi milli Reykiavíkur og sex erlendra stórborga í nokkur ár. Auk þess voru vélarnar í leiguferðum frá Evrópu og Asíu til Norður- og Suður-Ameríku fram til 1950. í september 1950 ónýttist „Geysir“ á Vatna- jökli, og í lok janúar 1952 brann „Flekla" suður á Ítalíu, þar sem hún var í leiguflugi hjá erlendu flugfélagi. Nú eiga Loftleiðir eina Skymasterflug- vél og leigja aðra. Eru þær í ferðum milli Evrópu og New York með viðkomu í Reykjavík. „Gullfaxi" Flugfélags íslands hefur verið mikill happaflugkostur. Hann hefur verið í stöðugum á- ætlunarflugferðum milli Reykjavíkur, Kaupmanna- hafnar, Prestvíkur, I,undúna og Osló, auk þess sem hann hefur farið í fjölmargar leiguferðir til hinna ólíkustu staða, svo sem Damascus og Narsars- suak. í desember s. 1. bættist Flugfélagi íslands svo nýr Skymaster, sem hlaut nafnið „Sólfaxi“. Með komu þeirrar vélar hingað til lands auðnaðist félag- inu enn að auka millilandaflug sitt og veita far- þegum betri þjónustu. Flugfélag íslands heldur ni'i uppi reglubundnum flugferðum milli Reykjavíkur og sex borga erlendis. Hafa þrír nýir viðkomustað- ir bætzt við áætlun félagsins í sumar, þ. e. Stokk- hólmur, Hamborg og Glasgow, sem kemur í stað Prestvíkur áður. ÁFANGI Á LANGRI LEIÐ. íslendingar horfa nú björtum augurn fram á við í flugmálum sínum. Enn hefur ekki verið náð nema áfanga á leið, sem stöðugt breikkar og lengist. Mik- ið vatn hefur runnið til sjávar síðan Katalínaflug- bátur Flugfélags íslands hóf sig til flugs í fyrstu millilandaflugferðina fyrir 10 árum. Mörgum og stórum Grettistökum hefur verið lyft í flugmálum okkar á þessu tímabili. íslendingar reka nú einir flugsamgöngur sínar milli Islands og annarra landa og flytja árlega þús- undir íarþega, jafnt erlenda sem innlenda. íslenzkar flugáhafnir njóta fyllsta trausts í sínu starfi og hafa getið sér hvarvetna góðan orðstí. Millilandaflug ís- lendinga, sem hófst með fyrstu flugferð Flugfélags ís- lands til Skotlands fyrir 10 árum, hefur rofið langa einangrun þjóðarinnar. Hin nýja samgöngutækni hefur fært okkur nær nágrannaþjóðunum og gerir okkur nú kleift að ferðast á jafnmörgum tímum landa á milli og það tók daga áður. Hin mikla og öra þróun í íslenzkum flugmálum vekur eftirtekt víða erlendis, enda má það kallast óvenjulegt, að smá- þjóð skidi geta hrundið slíku í framkvæmd. Á þessum tímamótum í sögu íslenzks millilanda- flugs er ástæða til bjartsýni. Áframhaldandi fram- takssemi og raunsæi þeirra manna, sem flugmál- um okkar stjórna, verður veglegasti bautasteinninn, sem hægt er að reisa fyrsta íslenzka millilandaflug- inu. ns. 4 FLUG

x

Flug : tímarit um flugmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Flug : tímarit um flugmál
https://timarit.is/publication/1869

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.