Flug : tímarit um flugmál - 01.07.1955, Blaðsíða 9

Flug : tímarit um flugmál - 01.07.1955, Blaðsíða 9
J Ó N N. P A L S S O N : NÆSTA VERKEFNI Við íslendingar getum ekki talizt gömul flug- þjóð, sé miðað við aðrar þjóðir, sem lengra eru á veg komnar í flugmálum eftir áratuga dýrmæta reynslu. Eigi að síður höfum við skilið hina miklu kosti flugsins til fulls og tekið það í þjónustu okkar landsmönnum til hagsbóta. Er óþarfi að rekja hér sögu íslenzkra flugmála, svo kunn sem hún er. Það eitt er víst, að flugið hefur fest öruggar ræt- ur í íslenzku þjóðlífi og skipar nú þýðingarmikinn sess í efnahags- og samgöngumálum þjóðarinnar. Mun vegur þess og fara vaxandi með ári hverju. í markvissri sókn fram á við hafa framtak og stór- hugur einkennt íslenzk flugmál öðru fremur, en um leið hefur einnig gætt nokkurs unggæðishátt- ar, sem ekki er óeðlilegt, þar sem um var að ræða byltingarkennda þróun á nýj'u sviði samgöngu- mála. Forsjónin hagaði því svo til, að upp í hendur okkar voru í stríðslok fagðir fullbúnir flugvelfir ásamt tilheyrandi mannvirkjum, sem okkur hefði reynzt ofviða að koma upp af eigin rammleik, og á þetta sennilega drýgstan þátt í hinum stórstígu framförum okkar í loftinu á síðari árum. Sömu- leiðis varð það lán okkar, að hentugar flugvélar fengust keyptar fyrir lítið verð, og gerði það okkur kleift að eignast álitlegan flota góðra flugvéla. Skal engu spáð um það, hvar við stæðum í fhig- málum í dag, ef þetta tvennt hefði ekki komið til. Með því að íslendingar fengu þannig að heita má í einni svipan í hendur dýr og fullkomin tæki, sem aðrar þjóðir höfðu þjálfazt upp í að fara með eftir mikla reynslu, verður ekki annað sagt en að íslenzkri flugliðastétt, ungri og lítt reyndri, hafi verið ærinn vandi á höndum, er hún hóf að reka hér reglubundið farþegaflug við frumbýlingshátt og skort á nauðsynlegum aðstoðartækjum til ör- yggis fluginu. Dýrkeypt reynsla færði okkur heim sanninn um, að við svo búið mátti ekki standa, ef tryggja ætti fluginu örugga framtíð hér á landi. Það hlaut því að verða okkar fyrsta verkefni lil aukins öryggis í flugsamgöngum að búa svo í hag inn fyrir flugmenn okkar, að þeir gætu með fullu öryggi flogið staða á milli, í dimmu sem björtu. Var málið tekið föstum tökum og undinn að þ\u bugur að setja upp öryggiskerfi fyrir fiugið. Um það vitna m. a. hinir nýju og fullkomnu radio- vitar, sem komið hefur verið upp víða um land, svo og stórbætt lýsing flugvallanna. Jafnhliða ic.su hafa einnig verið lagðir nýir flugvellir og þeir gömlu endurbættir. Engum mun blandast hugur um, að hér var rétt að farið, enda sjálfsagt og eð1 i- legt, að á þessar framkvæmdir væri lögð áherzia. Ber að þakka öllum, sem að þessum málum unnu, fyrir góðan skilning og framsýni. Þetta var það mál, sem rnest var aðkallandi og þoldi ekki bið. Nú liggur því fyrir að ákveða, hvaða verkefni beri að taka næst til úrlausnar. Sennilegt er, að um það verði ekki allir á eitt sáttir. Eleyrzt hefur, að hin nýja flugstöðvarbygging á Reykjavíkurflugvelli sé ofarlega á baugi, og skal undir það tekið, að mjög er æskilegt að slíkri byggingu verði komið upp svo fljótt, sem ástæður leyfa. Hefur íslenzk sendinefnd nýlega ferðast til London og Zúrich í þeim erindum að skoða slíkar byggingar, sem þar er verið að reisa. Þá hefur flug- málastjóri látið á sér heyra, að nauðsyn beri til að byggja hið fyrsta stóran flugvöll norður á Mel- rakkasléttu fyrir flugvélar, ,sem kunna að óska eftir að lenda þar á leið sinni milli Evrópu og Ameríku. Er þetta talið svo þýðingarmikið, að J.iað sé að verða mál málanna í flugmálum íslendinga, og er jafnframt gefið í skyn, að kostnað allan af byggingu slíks flugvallar yrðum við sjálfir að greiða án utanaðkomandi aðstoðar. En eitt er það mál, sem hljótt liefur verið um í fyrirhuguðum framkvæmdum til öryggis og eflingar íslenzkum flugmálum, og hefðu þó margir talið það eiga forgangsrétt öðrum málum fremur, svo veiga- mikið sem það er. Er hér átt við hin ófullkomnu flugskýli á Reykjavíkurflugvelli og óboðleg vinnu- skilyrði. Sömuleiðis skortinn á nægilega stóru flug- skýli fyrir millilandaflugvélar okkar, og að lokum aðbúnaðinn fyrir flugvélar á flugvöllum újti á landi. En allt hlýtur þetta að teljast til öryggis- mála flugsins næst á eftir uppsetningu radióvita- kerfisins. Flugskýlin á Reykjavíkurflugvelli voru reist á stríðsárunum og eru einungis byggð upp af stálgrind með einfaldri bárujárnsklæðningu. Geta lesendur Flugs farið nærri um, hvernig vinnuskil- FLUG - 7

x

Flug : tímarit um flugmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Flug : tímarit um flugmál
https://timarit.is/publication/1869

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.