Flug : tímarit um flugmál - 01.07.1955, Side 10
yrði eru í slíkum húsakosti að vetri til, þegar frost
er jafnmikið inni sem úti, en snjóinn skefur inn
um óþéttar dyr og glufur, eða vatnsflaumur þek-
ur góifin í rigningum. Við þessi skilyrði er mönn-
um þeim, sem ábyrgð bera á ástandi og flughæfni
flugvélanna, ætlað að vinna störf sín, og þannig
hafa þeir unnið árum saman, svo að heilsu þeina
hefur jafnvel verið hætta búin. Er þá ótalin sú
hliðin, sem að öryggi flugvélanna snýr, en það má
öllurn ljóst vera, að lélegur og raunar ómannsæm-
andi aðbúnaður er til annars betur fallinn en að
skapa vinnugleði og örfa menn til bættra starfs-
hátta. Eru þess og mörg dæmi, að illmögulegt og
næsturn ógerlegt hefur reynzt að inna af höndum
nauðsynleg verk á flugvélunum vegna lélegra og
óviðunandi starfsskilyrða. Þess verður ekki krafizt
með nokkurri sanngirni, að einn starfshópur flug-
málanna, sem er jafnnauðsynlegur og hver annar,
vinni störf sín við slík skilyrði ár eftir ár, og sé
þannig skör lægra settur en aðrir. Endurbætur þær,
sem verið er að gera á einu flugskýlanna, eru spor
í rétta átt, en þeim miðar seint áfram. Þó er skylt
að þakka hverja þá breytingu, sem liorfir til bóta.
Hér er aðeins hálfsögð sagan. Flugskýlin á Reykja-
víkurflugvelli voru ekki byggð til að hýsa flugvélar
á stærð við millilandaflugvélar okkar, og hafa skap-
azt af því vandræði, sem beðið hafa úrlausnar árum
saman. Þótt gripið hafi verið til þess neyðarúrræðis,
að skáskjóta flugvélunum inn í skýlin, er slíkt á-
hættusamt og krefst mikillar nákvæmni, ef ekki á
illa að fara. Er það því engin lausn á málinu. Þar að
auki eru slíkar tilfæringar ógerlegar, ef eitthvað
er að veðri. Það er því eingöngu af brýnni nauð-
syn, að flugvélarnar eru settar í skýli til meirihátt-
ar eftirlits eða viðgerða. Að öðru leyti verða þess-
ar stóru og dýru flugvélar að standa undir berum
himni allan ársins hring og þola öll þau veður, sem
íslenzkri veðráttu þóknast upp á að bjóða. Þarf
ekki flugfróðan mann til að geta sér til, hver áhrif-
in verða af slíkri veðrun, og bætir það ekki úr
skák, að flugvöllurinn stendur við sjó, þar sem loft-
ið er mettað sjávarseltu, sem hefur mjög tærandi
áhrif á málm flugvélanna. Afleiðingin er því rýrn-
un flugvélanna fyrir aldur frarn og stóraukinn við-
haldskostnaður. Sömuleiðis fylgja útivist flugvél-
anna mikil vandkvæði við nauðsynlegt eftirlit
þeirra, einkum að vetrarlagi. Sýnir Jretta Ijóslega,
hvert öryggisatriði það er að koma flugvélunum
undir Jrak, og hve brýn þörf er á að koma nú þeg-
ar upp stóru og hentugu flugskýli fyrir þær.
íslenzku millilandaflugvélarnar eru nú þrjár, og
V\ui\ |
í TÍMARIT UM FLUGMÁL
I Ritstjóri og ábyrgðarmaður: )
/ JÓN N. PÁLSSON (
/ Útgefandi: FLUGMÁLAFÉLAG ÍSLANDS (
| Afgreiðslu og innheimtu annast j
) GUÐRÚN MÖLLER /
( Birkimel 6 B, simi 5588. .
PRENTSMIÐJAN ODDI H. F. (
von er á þeirri fjórðu innan skamms. Jafnframt
heyrast raddir um, að við verðum að hefjast handa
um kaup á fullkomnari flugvélum til að vera sam-
keppnisfærir í loftinu, og er það mikið rétt. En
mörgum mun vera spurn: Er skynsamlegt að kaupa
til landsins hverja millilandaflugvélina á fætur
annarri á meðan ekki er til húsakostur til að veita
þeim viðtöku? Eg hygg, að þessu verði aðeins svar-
að neitandi, því miður. Sannleikurinn er nefni-
lega sá, að skilyrðin til að reka millilandaflug frá
Reykjavík eru hin fátæklegustu í sinni núverandi
mynd, og er vissulega tími til kominn að hefjast
handa um gagngerar endurbætur í þeim efnum.
Um aðbúnaðinn á flugvöllum úti á landi er það
að segja, að flugvélum getur stafað bein hætta af
að dvelja þar veðurtepptar, eins og dæmin sanna.
Einföld skýli, sem hýst geta veðurtepptar flugvélar
í neyðartilfellum, Jrurfa að rísa upp á öllum helztu
flugvöllum úti á landi — og skal ekki fjölyrt meira
um þetta hér, svo augljóst sem það er.
Að öllu athuguðu ættu réttsýnir menn að geta
orðið sammála um, að næsta verkefnið, og það
sem krefst úrlausnar nú þegar, er bygging flug-
skýlis fyrir millilandaflugvélar okkar og bætt starfs-
skilyrði á Reykjavíkurflugvelli. í kjölfar þeirra
endurbóta kæmi svo bygging einfaldra flugskýla úti
á landi. Þetta er mál málanna í dag — öryggismál,
senr varðar íslenzkar flugsamgöngur miklu. Okkur
ber fyrst að hlú að þeim gróðri, sem fyrir er, áður
en ráðizt er í fjárfrekar framkvæmdir á nýjum svið-
um.
8 - FLUG