Flug : tímarit um flugmál - 01.07.1955, Síða 12

Flug : tímarit um flugmál - 01.07.1955, Síða 12
LÓÐRÉTTFLUGTAK Þeir, sem fylgzt hafa með fréttum í erlendum flugtímaritum undanfarið, hafa veitt því athygli, hve rík áherzla virðist vera lögð á smíði flugvéla, sem geta hafið sig til flugs og lent lóðrétt. Er hér ekki átt við þyrilfluguna, eins og sjá má hér á eftir. Það hefur, sem kunnugt er, verið eitt aðalvanda- mái flugsins til þessa, hvernig losna megi við hinn mikla hraða, sem er samfara flugtaki og lendingu flugvéla og gerir slíkt að hættumestu atriðum flugs- ins. Flugvél þyrfti að vera þeim kostum búin að hafa álitlegan hraða í iáréttu flugi, en lítinn eða engan hraða í flugtaki og lendingu. Þyrilflugan uppfyllir að nokkru leyti þessa kosti. Hún getur hafið flug og lent með engum hraða, flogið afturábak og til hliða og hangið kyrr í loft- inu. En sá böggull fylgir skammrifi,' að hún nær aðeins takmörkuðum flughraða, og er henni því skorinn of þröngur stakkur. Nú vilja menn hins vegar fá ílugvélar, sem hafa yfir miklu hraðasviði að ráða, ríflegan hámarks- hraða, en lítinn eða engan lágmarkshraða (lágmarks- hraði er minnsti hraði, sem þarf til að halda flug- vél á lofti). Við það skapast aukið öryggi í flugsam- , Fljúgandi rúmslceðið göngum, og hinir stóru og dýru fiugvellir kunna að verða óþarfir í framtíðinni. í þessa átt virðist þró- unin ætla að stefna. Til að finna lausn á þessu vandamáli flugsins hafa margir lagt hönd á plóginn, og í leit sinni að heppilegustu aðferðinni til að gera þessa hugmynd að veruleika, hafa fiugvéiasmiðir að vonum dottið niður á margar og ólíkar gerðir flugvéla, eftir því hvaða hlutverki þeim er ætlað að gegna. Er því ekki ófróðlegt að líta yfir það helzta, sem fram hef- ur komið á þessu sviði. I september 1954 var gert heyrinkunnugt í Eng- landi, að Rolls Royce hreyflaverksmiðjurnar hefðu smíðað íurðuflugvél nokkra, sem síðan hefur geng- ið undir nafninu „fljúgandi rúmstæðið” vegna und- arlegs útlits síns. Smíð þessi, sem svipar í engu til venjulegra flugvéla, hefur enga vængi, en er knú- in af tveim þrýstihreyflum, sem liggja láréttir, en útblástursopum þeirra er beint lóðrétt niður. „Rúm- stæðið“ getur lyfzt frá jörðu fyrir orku hreyflanna einna. Samanlagður þrýstingur þeirra beggja er 10.000 pund, og er hann þyngri á metunum en heildarþyngd allrar flugvélarinnar, sem er 8000 pund, og þess vegna nær hún að lyfta sér. Er látið í veðri vaka, að hér sé á ferðinni undanfari stærri og merkilegri uppgötvana við ráðningu hins gamla vandamáls — hraðasviðsins. Hámarkshraði flug- véla hefur stöðugt aukizt, og sama er að segja um lágmarkshraðann, sem þegar er orðinn of hár að áliti flugfróðra manna. Tii að ráða bót á þessu hafa flugvélasmiðir útbúið flugvélar sinar ýmsum tækjum á vængjunum til að minnka lendingar- hraðann, en það er þó aðeins skammgóður vermir, og er ekki varanleg lausn á vandamálinu. Með „fljúgandi rúmstæðinu“ er vandamálið tek- ið allt öðrum tökum. Þar er orka hreyflanna bein- línis hagnýtt til að efla og bera uppi flugvélina í flugtaki og lendingu, en vængirnir eingöngu ætlaðir til að bera flugvélina upp á flugi. í frarn- haldi af þessu eru svo uppi ráðagerðir um að út- búa flugvélar framtíðarinnar með sérstökum lyfti- hreyflum, sem hafa mikið afl miðað við þyngd, en er að öðru leyti aðeins hugað stutt líf. Þegar flugvélin sé komin í örugga hæð með lyftihreyfl- unum, verði aðalhreyflarnir ræstir og flugvélin nái 10 - FLUG

x

Flug : tímarit um flugmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Flug : tímarit um flugmál
https://timarit.is/publication/1869

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.