Flug : tímarit um flugmál - 01.07.1955, Síða 18
f
meira aðdráttarafl en útsýnið. Á íslandi er það
eins hversdagslegt að fljúga og fyrir Stokkhólms-
búa að ferðast með lestinni til Södertálje."
SKRIFSTOFUR í SEX BORGUM ERLENDIS.
Flugfélag íslands hefur nú skrifstofur í sex borg-
um erlendis, og veita eftirtaldir menn þeim for-
stöðu: Baldur Jónsson (Stokkhólmur), Birgir Þor-
gilsson (Hamborg), Birgir Þórhallsson (Kaupmanna-
höfn), Hilrnar Pálsson (Glasgow), Jóhann Sigurðs-
son (London) og Stefán Jónsson (Osló).
SUMARÁÆTLUN Á INNANLANDSLEIÐUM.
Sumaráætlun Flugfélags íslands í innanlands-
flugi gekk í gildi 25. maí. Er hún með svipuðu
sniði og í fyrra nema hvað flugferðum til Egils-
staða hefur verið fjölgað til muna. Er ráðgert að
fljúga þangað alla virka daga. Þá verða í fyrsta
skipti í sumar hafnar reglubundnar flugferðir milli
Reykjavíkur og Grímseyjar með viðkomu á Akur-
eyri í báðum leiðum. Hófust þessar ferðir um miðj-
an júní, og er flogið hvern sunnudag fram í miðj-
an september. Er höfð fjögurra tíma viðstaða í
Grímsey, og gerir það mönnum kleift að skoða sig
um á eynni og njóta náttúrufegurðar norðan heim-
skautsbaugar. — Milli Akureyrar og Reykjavíkur
verða farnar 18 ferðir í viku; morgun-, síðdegis- og
kvöldferðir fjóra daga vikunnar og morgun- og
kvöldferðir þrjá daga. Vestmannaeyjaferðir verða
tvær alla virka daga en ein ferð á sunnudögum.
Eins og áður er getið, verða flugferðir til Egilsstaða
alla virka daga, og verða tvær þeirra um Akureyri
og ein um Hornafjörð. Þá verður flogið til ísafjarð-
ar alla daga að sunnudögum undanteknum. Til
Hornafjarðar og Sauðárkróks verða þrjár ferðir í
viku hverri og tvær ferðir til eftirtaldra staða:
Flateyrar, Þingeyrar, Patreksfjarðar, Blönduóss,
Kópaskers, Siglufjarðar og Fagurhólsmýrar. Viku-
legar ferðir verða farnar til Bíkludals, Hólmavíkui',
Sands, Kirkjubæjarklausturs, Skógasands og Hellu.
— Flugvélar Flugfélags íslands munu halda uppi
áætlunarflugi til 20 staða utan Reykjavíkur í sum-
ar, og munu þær verða á flugi 142 klukkustundir
að jafnaði á viku.
NÝTT MÖTUNEYTI FYRIR
STARFSFÓLK F.í.
Þann 1. júní tók til starfa nýtt mötunevti fyrir
starfsfólk Flugfélags íslands á Reykjavíkurflugvelli,
og er það til húsa í verkstæðisbyggingu félagsins.
Húsakynni eru þarna hin vistlegustu og geta 48
manns matazt í einu. Fyrst í stað verður borðað í
tveimur hópum. Matur allur er aðkeyptur, en hon-
um er komið fyrir í stóru rafmagnshitaborði úr stáli,
sem Rafha hefur smíðað. Aðrar eldhúsinnrétting-
ar, borð, stóla o. fl. hafa tveir af starfsmönnum
Flugfélags íslands smíðað, þeir Sigvaldi Bessason og
Kjartan Stefánsson. Mötuneytinu veitir forstöðu Jó-
hanna Kristjánsdóttir. Þetta nýja mötuneyti, sem
komið hefur verið á fót af F.Í., nýtur mikilla vin-
sælda meðal starfsfólks þess á Reykjavíkurflugvelli,
enda skapar það mikil þægindi og sparar fyrirhöfn
fyrir þá, sem átt hafa langa leið í mat. Starfsmenn
félagsins, sem borða í mötuneytinu, greiða mat sinn
með því að lengja vinnutímann um ]/2 klukkustund
á dag. Starfsmannafélag Flugfélags íslands hefur
verið með í ráðum um stofnun hins nýja mötuneyt-
is og stjórn þess átt drjúgan þátt í að hrinda því
máli í framkvæmd.
Aðalfundur F.F.Í var haldinn í Tjarnarcafé 13.
maí s. 1.
Á fundinum fór fram stjórnarkjör, og var fráfar-
andi stjórn félagsins öll endurkjörin. Hún hefur
nú skipt með sér verkum, og hafa orðið nokkrar
breytingar þar á frá því sem áður var: Jón Eyþórs-
son forseti, Björn Pálsson varaforseti, Jón N. Páls-
son ritari, Hákon Guðmundsson gjaldkeri og
Björn Br. Björnsson meðstjórnandi.
í varastjórn voru kjörnir: Karl Eiríksson, Helgi
Filipusson og Björn Jónsson.
Endurskoðendur voru endurkjörnir: Sigfús H.
Guðmundsson og Gunnar Jónasson.
Að loknu stjórnarkjöri var sýnd kvikmyndin
„Lærðu og lifðu,“ sem Björn Jónsson flugumferð-
arstjóri skýrði. Fjallaði kvikmyndin um flugslys og
algengustu orsakir þeirra, og svo skemmtilega á
svið sett, sem kvikmyndin var, má fullyiða, að hún
var ekki síður lærdómsrík og fræðandi. Var gerð-
ur að henni góður rómur.
Þessu næst var fundi slitið og kaffi fram borið.
Á fundinum kom fram ósk um, að félagsmenn fengju
eintak af lögum félagsins, sem eru nokkuð úrelt
orðin og þurfa endurskoðunar við, og bauðst Björn
Jónsson flugumferðarstjóri til að fjölrita þau og
láta í té ókeypis þeim, sem hafa vilja, og mega þeir
því vitja þeirra til Björns í flug-turninum á Reykja-
víkurflugvelli.
16 - FLUG