Flug : tímarit um flugmál - 01.07.1955, Side 21
Mynd 2.
3em áður starfaði hjá Sperry Gyroscope Co., og gef-
ur hún ýtarlega skýringu á starfsemi Gyrotrons.
Ef meðfylgjandi mynd nr. 1 er höfð til hliðsjón-
ar er auðvelt að komast í skilning um, hvernig nota
má tónkvísl til að gefa merki um stöðubreytingu,
miðað við geimstefnu. Gerum ráð fyrir, að þegar
athugun fer franr, séu álmurnar á hreyfingu livor
mót annarri, eins og merkt er á myndinni, en sá
er eiginleiki tónkvíslar, að álmurnar titra ætíð
þannig, að þær nálgast og fjarlægjast hvor aðra í
sama mund. Ef einnig er gert ráð fyrir, að kvíslin sé
á hreyfingu rangsælis um ásinn SS, og haft er hug-
fast lögmálið um sveiflutíðni pendúls (t — II y/ 1 /g),
verður ljóst, að snúningur kvíslarinnar eykst, þegar
álmurnar nálgast, rétt eins og sveiflutíðni pendúls-
ins eykst, þegar hann er styttur. Aftur minnkar
hreyfing kvíslarinnar um ásinn SS, þegar álmur
hennar fjarlægjast, og er þar með fullnægt lög-
málinu um varðveizlu snúningsmagnsins: „Summ-
an af snúningshreyfingu hlutar getur ekki breytzt
vegna innri hreyfingar hlutarins.“
„Þegar tindarnir nálgast hvorn annan, eykst snún-
ingshraði kvíslarinnar, þegar tindarnir fjarlægjast,
minnkar snúningshraðinn."
Ef þessi einfalda regla er höfð í huga er auðvelt
að skilja undirstöðuatriði Gýrótronsins. Tilhneiging
álmanna til þess að auka og minnka á víxl snúnings-
hraða kvíslarinnar veldur víxl-vindingi í skafti henn-
ar, og er hann að magni í réttu hlutfalli við snún-
ingshraða kvíslarinnar um ásinn SS. í Gýrótroninu
er magn vindings og stefna borin saman við hreyf-
ingu tindanna, svo tækið getur gefið til kynna,
hvort rétt- eða rangsælis snúningshreyfing á sér stað.
Samanburður þessi er gerður raffræðilega, og er
skema sýnt á mynd nr. 2.
Eftirfarandi lýsing á starfsemi Gýrótronsins er
tekin úr ritgerð Lymans:
í 3. mynd er gert ráð fyrir, að tækið sé á stöðugri
hreyfingu réttsælis. Sjá má, að með hreyfingu álm-
anna úr stöðu „A“ til „C“, vinzt upp á stand og
vindingsfjöður kvíslarinnar. Er þetta sýnt í ýktri
mynd í nr. 3. (Ath. á smámyndunum tveim, sem
fylgja, að þegar álmurnar eru í stöðu A liggur
straumfjöðurinn við hægri spóluna. í stöðu C er fjöð-
urinn hins vegar sýnd snerta vinstri spóluna).
Myncl nr. 4 líkist 3. mynd að öðru leyti en því,
að tækið er nú á stöðugri hreyfingu rangsælis. Það
er augljóst, ef litið er á álmurnar í stöðu A, að
straumfjöðurin er í gagnstæðri stöðu við þá á mynd 3.
Við frekari samanburð mynda 3 og 4 sést, hvernig
snúningsstefnan breytir innbyrðis stöðu álmanna og
straumfjaðrarinnar. Hafa hér öll öflin tekið stefnu-
breytingu frá rétt- til rangsælis með þeirri afleið-
ingu, að fasi rafstraums þess, er um spólurnar fer,
breytir um formerki. Verður því 180° munur á fasa
rafmerkja þeirra, sem spólurnar nema við rétt- og
rangsælis snúning kvíslarinnar.
Þannig starfar í stuttu máli Sperry Gýrótron-snún-
ingshraðamælirinn. Hann er óháður núningsmót-
stöðunni, og er þar með rutt úr vegi einum aðal ann-
marka gýrósins. Er hann því ákaflega stöðugur, næmi
hans mikið og hæfileiki til að mæla mismunandi
snúningshraða slíkur, að hann getur mælt allt frá
einum snúning á sólarhring upp í 100 snúninga á
mínútu.
Þess ber að gæta, að tækið er enn á bernskuskeiði,
og enn ekki hægt að gera sér fyllilega Ijósa mögu-
leika þess né takmarkanir.
Ragnar G. Kvaran þýddi.
Mynd 3. Mynd 4.
FLUG
19