Flug : tímarit um flugmál - 01.12.1956, Blaðsíða 15
Y N
Lítill snáði snaraðist inn til mín
og sagði:
— Góðan daginn. Ég heiti Gunn-
ar Þorkelsson. Ég var sendur frá
Flugfélagi íslands.
— Já einmitt. Þú ert þá yngsti
starfsmaðurinn hjá félaginu. Hvað
ertu gamall?
— Fimmtán ára.
— Og hefirðu áhuga fyrir flugi?
- Já-
— Það var ágætt, því annars
hafði ég raunar ekkert við þig að
tala. F.n nú tek ég blað og blýant
og krota eitthvað upp eftir þér.
Ég hef jafnvel hugsað mér að birta
það í tímaritinu „Flugi“. Hvernig
lýst þér á það?
— Já, ja, það er víst allt í lagi.
— Hvað gerirðu hjá Flugfélag-
inu?
— Ég er sendill.
— Hvernig stóð á því að þú fórst
að vinna þar?
— Ég frétti bara að það vant-
aði strák þangað fyrir sendil. Og
svo fór ég og réði mig.
— En hvenær fékkstu áhuga fyr-
ir fluginu?
— Ég byrjaði í haust. Við erum
þrír strákar, sem byrjuðum þá með
„línukontrol".
— Nú, hvað er það? Já, þú fyrir-
gefur. Ég hef nefnilega ekkert vit
á flugi.
— Það eru, skal ég segja þér,
litlar flugvélar, sem við höfum
smíðað sjálfir upp úr módelblöð-
um. Það er í þeim lítill flugvéla-
mótor, sem gengur fyrir benzín-
blöndu. Þeir fást hér. Svo höfum
við línu, sem við stjórnum vélun-
um með. Þetta er anzi skemmtilegt.
— Ja hérna! Þetta hefir líklega
ekki verið til þegar ég var strákur.
En hverjir eru félagar þínir og
hvað eru þeir gamlir?
T I
s
T
A
R
F
S
M
A
Ð
U
R
I
N
N
— Annar heitir Ásgeir Gunnars-
son og er 14 ára, en hinn heitir
Stefán Gunnarsson og er 16 ára.
Þeir eru bræður.
— Þekkirðu fleiri, sem hafa
áhuga?
— Já ég þekki marga.
— Og ætlið þið allir að fara að
fljúga.
— Já við byrjum áreiðanlega all-
ir þessir þrír. Ég ætla að byrja
næsta sumar á Sandskeiðinu hjá
Svifflugfélagi íslands.
- Hefirðu flogið?
— Já, já. Til dæmis austur að
Egilsstöðum. Ég fékk að vera
frammi í hjá flugmanninum. Hann
skýrði allt fyrir mér, sem fyrir
kom á meðan á fluginu stóð. Það
er gaman að vera í stjórnklefan-
um.
Gunnar við stjórnvölinn.
— Hræddur?
— Ég — Nei-nei!!
— Hvað gerirðu í frístundum
þínum? Lestu ekki eitthvað af
blöðum um flug?
— Ég skoða aðallega flugmódel-
blöðin. Svo smíða ég flugvélar í
frístundunum. Við erum búnir að
smíða margar saman við strák-
arnir.
— Eigið þið þá ekki margar
flugvélar?
— Þær vilja nú „krassa“. En við
smíðum alltaf betri og betri flug-
vélar og hættum þá við hinar.
— Segðu mér. Finnst þér gam-
an að vinna hjá Flugfélaginu?
Hefirðu ekki sæmilega aðstöðu
þar til þess að ná í hitt og þetta,
sero. ykkur vanhagar um í flug-
smíðina?
FLUG - 13