Flug : tímarit um flugmál - 01.12.1956, Blaðsíða 33
Flugvélar félagsins.
Loítleiðir hafa nú fjórar Sky-
masterflugvélar í förum, Heklu,
Sögu, Eddu og leiguflugvélina LN-
SUP, en sú síðastnefnda kom til
starfa í ágústmánuði síðastliðnum.
Þegar þetta er ritað eru þær
Hekla og Edda nýkomnar frá 6
vikna endurskoðun í Stafangri, en
þar voru margar breytingar gerðar
til bóta, auk hins lögboðna eftir-
lits og endurnýjunar á öllu því,
sem talið var að betra væri nýtt
en notað.
Til gamans má geta þess, að á
árinu var sett nýtt met Skymaster-
flugvélar á flugleiðinni New York
—Reykjavík. Var það leiguflugvél
Loftleiða, sem fór þessa leið 14.
september sl. á 10 klst. og 12 mín.,
eða með 424 km. meðalhraða. Jó-
hannes Markússon var flugstjóri í
þessari hraðferð flugvélarinnar.
Nýir kaup- og kjarasamningar
við flugliða.
31. október sl. sögðu flugmenn,
flugleiðsögumenn og flugvirkjar
upp kaup- og kjarasamningum með
þriggja mánaða fyrirvara og kem-
ur því til vinnustöðvunar, ef eigi
liefir verið samið fyrir 1. febrúar
næstkomandi. Eigi er þeim, er
þetta ritar, ljóst, hvað valdið hafi
uppsögn samninga, enda munu
viðræður aðila enn ekki hafnar, og
skal því enginn dómur á það lagð-
ur, hvort hér hafi borið nauðsyn
til, en hitt er ljóst, að mikil þörf
er þess, að gengið verði nú svo frá
hinum væntanlegu samningum, að
eigi þurfi að koma til nýrrar upp-
sagnar að ári liðnu, og ættu for-
ráðamenn beggja flugfélaganna að
reyna að fá heildarsamninga um
kaup og kjör við allt starfsfólk
sitt, og koma þannig í veg fyrir að
einhverjir hópar geti fyrirvaralítið
rofið vinnufrið og stefnt með því
öllu í voða.
Er í þessu sambandi athyglisverð
tillaga, sem flugmálastjóri gerði í
verkfallinu mikla vorið 1955, en
þar lagði hann til að fá heildar-
samninga um kaup og kjör við alla
þá, sem vinna á einn eða annan
hátt að flugmálum á íslandi.
íslenzk landkynning.
Verulegur hluti þeirra milljóna,
sem Loftleiðir verja árlega til aug-
lýsinga erlendis, rennur beint eða
óbeint til íslenzkrar landkynning-
ar. Auk þess hefir félagið á þessu
ári boðið hingað allmörgum er-
lendum fréttamönnum og þeim
starfsmönnum sínum erlendis, sem
einungis ferðast um til þess að
kynna félagið, að ógleymdu ýmsu
öðru, sem vakið hefir nokkra at-
hygli, svo sem heimsókn Berlínar-
barnanna í sumar, tilboði um ferð-
ir laxaveiðimanna frá Bandaríkj-
unum og fleira. Það lætur því að
líkum, að Loftleiðir láti sig ein-
hverju varða þau skilyrði, sem hér
eru búin erlendum ferðamönnum.
Nú vill svo til að félagið hefir
nokkrum sinnum á því ári, sem nú
er að líða, orðið að sannprófa þau.
Hefir það einkum verið, þegar svo
hefir staðið á austan eða vestan
hafsins, að ráðlegra þótti að bíða
byrjar en halda héðan. Er skemmst
af því að segja, að þá er engu
betra að vera staddur hér í Reykja-
vík en úti á hinum miklu sand-
auðnum Afríku, þar sem ekkert
skjól er að fá. Hefir þá í skyndi
verið leitað til Keflavíkurflugvall-
ar á náðir Bandaríkjamanna, og
eru þess dæmi að þeir hafa skotið
skjólshúsi yfir hátt á sjötta tug far-
þega í senn. Gott er þeirn eflaust,
sem þiggja, að mega þannig frem-
ur leita á náðir Samverjanna suð-
ur þar, en prófa um nætursakir hér
í Reykjavík hina marglofuðu ís-
lenzku gestrisni, en stórmannlegt
verður það naumast talið af okk-
ur, né í fullu samræmi við þá lof-
gerðarrollu, sem lesa má í ferða-
Við matborðið i flugvél Loftleiða.
mannapésum um ágæti íslands-
byggðar, en fyrir því skyldi engan
undra þótt ýmsum þeim, er þannig
hafa orðið að hrekjast í kassabíl
um hin svörtu hraun Suðurnesja
í leit að hvíldarstað, verði ísland
í endurminningunni öllu fremur
sá nöturlegi „damned rock“ ame-
rískra dáta en hið ævintýraprúða
undraland bláeygra og bjarthærðra
niðja hins norræna kappakyns.
Loftleiðir verða vitanlega að halda
áfram á þeirri braut að kynna það
fyrir útlendingum að Islands sé
annað og meira en „bölvað útsker“
og illviðrabæli, til þess að fólk þori
að koma hér við á leið sinni milli
meginlandanna tveggja, en eins og
nú er í pottinn búið virðist mjög
vafasamt að hvetja farþega til þess
að eiga hér viðdvöl. Fyrir því sýn-
ist nú tími til kominn að hinir
visu stjórnarherrar geri annað af
tvennu, felli hreinlega niður fjár-
veitingar til íslenzkrar landkynn-
ingar erlendis eða veiti stuðning
til bygginga og reksturs gistihúsa
og komi hér á sérstökum ferða-
mannagjaldeyri, en að síðari leið-
in verði fremur valin er ekki ein-
FLUG - 31