Flug : tímarit um flugmál - 01.12.1956, Blaðsíða 28
Aimáll Fíuáfélaás íslands
Arið 1956 varð mesta annaár í
sögu Flugfélags íslands. Fluttir
voru um 70 þúsund farþegar á inn-
anlands- og millilandaflugleiðum,
og nemur aukningin um 30% mið-
að við árið áður, en þá fluttu flug-
vélar félagsins samtals rösklega 54
þúsund farþega.
Millilandaflugið.
Mikil gróska var í millilanda-
fluginu, bæði í áætlunarflugi og
leiguflugi. Ferðir til Grænlands
urðu mjög tíðar á árinu, einkum
til Thule, Norðurstöðvar og Meist-
aravíkur. Voru ferðirnar farnar
fyrir danska aðila, er sjá um marg-
víslegar framkvæmdir á Grænlandi.
Flugáhafnir F.í. eru nú orðnar vel
kunnugar staðháttum þar í landi,
enda njóta íslenzkir flugliðar mik-
ils álits hjá þeim erlendu aðilum,
sem tekið hafa flugvélar F.í. á
leigu til þessara ferða.
Þann 27. maí voru 10 ár liðin
frá því íslendingar hófu reglubund-
ið millilandaflug. Hafði Flugfélag
íslands samið við Scottish Aviation
árið 1946 um leigu á Liberator-
flugvélum, og voru þær í förum
milli Reykjavíkur, Prestvíkur og
Kaupmannahafnar um tveggja ára
skeið, eða þar til félagið eignaðist
Gullfaxa.
Þrír af flugmönnum F.Í., þeir
Sverrir Jónsson, Aðalbjörn Krist-
bjarnarson og Jón Jónsson, fengu
flugstjóraréttindi á Skymastervélar
félagsins á árinu 1956. Hafa þá alls
8 af flugmönnum F.í. slík réttindi.
Innanlandsf lugið.
Innanlandsflug óx einnig mikið
á liðnu ári. Haldið var uppi reglu-
bundnu flugi til 21 staðar utan
Reykjavíkur yfir sumarmánuðina.
Fjölgað var nokkuð ferðum til Ak-
ureyrar, Egilsstaða og ísafjarðar.
Til Akureyrar voru farnar 20 ferð-
ir á viku s.l. sumar. Þá bar það til
tíðinda í ágúst, að farþegatalan
innanlands fór yfir 10.000, og hef-
ur það aldrei skeð fyrr á einuin
mánuði. Eru það fleiri farþegar
en félagið flutti til samans 7 fyrstu
árin, sem það starfaði.
Ný deild tekur til starfa.
S. 1. vor tók til starfa ný deild
hjá Flugfélagi íslands á Reykja-
víkurflugvelli. Er hér um að ræða
flugumsjón. Með tilkomu þessarar
deildar er ráðin stór bót á af-
greiðsluháttum félagsins. Margt af
því, sem nú er viðfangsefni flug-
umsjónar, hvíldi áður á farþega-
afgreiðslunni, sem hafði frekar
slæm skilyrði til að leysa þau verk
af hendi. En margt nýtt hefur og
komið fram með stofnun deildar-
innar. Þeir Bjarni Jensson, flug-
maður, sem verið hafði yfirflug-
umsjónamaður á Keflavíkurflug-
velli, og Jóhann Gíslason, yfirloft-
skeytamaður félagsins, voru fengn-
ir til að gera tillögur um stofnun
flugumsjónardeildarinnar. Með
þessu nýja fyrirkomulagi eru þá
teknar saman í eitt loftskeyta-,
siglingafræði- og flugumsjónar-
deild félagsins undir stjórn Jó-
hanns Gíslasonar.
Viðbótarbyggingar og nýtt
húsnæði erlendis.
Síðla sumars var tekin í notkun
viðbótarbygging hjá félaginu á
Reykjavíkurflugvelli fyrir toll- og
vegabréfaskoðun millilandaflugs-
ins. Var orðin brýn nauðsyn til úr-
bóta hvað þessa hlið starfseminn-
ar snerti, þar sem millilandaflugið
hefur verið í stöðugum vexti und-
anfarin ár, en aðstæður hvergi
nærri hentugar til afgreiðslu. Hef-
ur nú verið ráðin bót á þessu máli
í bili. Þá er nú í smíðum önnur
viðbótarbygging hjá F. I. á Reykja-
víkurflugvelli, en þar munu áhafn-
ir aðallega fá samastað.
Nú um áramótin flutti skrif-
stofa F. í. í Lundúnum úr sínu
gamla húsnæði í Princes Arcade í
ný húsakynni við Piccadilly 161,
og er þau á götuhæð í hjarta borg-
arinnar. Þá hefir skrifstofu félags-
ins í Kaupmannahöfn tekizt að fá
húsnæði á götuhæð í sama húsi og
hún er nú, Vesterbrogade 6 C.
Búizt er við, að skrifstofan geti
flutt í marz.
Heimsóknir erlendra fréttamanna.
Flugfélag íslands hefir greitt
götu margra erlendra fréttamanna
s. 1. ár, sem komið hafa hingað til
lands ýmist á vegum félagsins eða
af eigin hvötum. Hefur mikill
fjöldi greina birzt um ísland og
íslenzk málefni í blöðum vestan
hafs og austan eftir þessa gesti.
Þá er vitað um útvarpsþætti um
ísland samda af sumum þessara
manna, og hafa þeir t. d. verið
fluttir í útvarp í Bretlandi, Þýzka-
landi, Austurríki, Skandinavíu og
Kanada. Hefir Flugfélag íslands á
undanförnum árum lagt áherzlu
á landkynningu í vaxandi mæli
og myndi eflaust láta sér þau mál
meiru skipta, ef aðstæður væru hér
slíkar, að unnt væri að taka á
móti erlendum gestum svo nokkru
nemi.
Nýtt nafn — ICELANDAIR.
Flugfélag íslands hefur allt frá
árinu 1940 gengið undir enska
26 - FLUG