Flug : tímarit um flugmál - 01.12.1956, Blaðsíða 27
Annáll Þyts.
Á árinu 1956 var ílogið hjá
Flugskólanum Þyt h.f. samtals
1845 klukkustundir. Mest af því
var kennsluflug.
Mikil aðsókn hefir verið af
mönnum, sem taka ætla einka-
flugpróf. Auk þess hafa nokkrir
lokið atvinnuflugprófi og blind-
flugsprófi á árinu.
Bóklegt námskeið var haldið í
lok ársins fyrir einkaflugpróf. Þar
luku prófi 23 nemendur, þar af ein
stúlka. Hæstu einkunnir hlutu
þeir Arni Ólafsson og Haukur
Stefánsson, 97% hvor. Núna stend-
ur yfir bóklegt námskeið fyrir at-
vinnuflugpróf og eru þátttakend-
ur 13. Kennsla fer fram í Iðnskól-
anum.
Þörf er á að hafa aftur bóklegt
einkaflugprófsnámskeið en ekki
ákveðið þar um.
Auk flugkennslu heíir skólinn
annast ýmislegt annað flug, svo
sem: Síldarleit, sjúkraflug, flutn-
ing á vélahlutum, beituflutning,
flutning á ferðafólki og sölumönn-
um, flogið með áhafnir á skip,
varpað niður gjafapökkum og aug-
lýsingamiðum, leitað að kindum,
dregið auglýsingaspjöld, lesið aug-
lýsingar í gjallarhorn og margt
fleira.
Nokkuð dregur úr starfseminni
á veturna og er sá tími notaður til
undirbúnings að sumarstarfinu og
vélarnar standsettar.
Við vonum að geta mætt vorinu
með nægum kosti flugvéla og flug-
kennara.
í ráði er að kaupa Cessna 170
flugvél fyrir vorið og hefir verið
heitið leyfi til þess. Auk þess er
verið að athuga hvort liægt er að
fá starfsvanan flugkennara frá
brezkum flugskóla til að aðstoða
við starfið í sumar.
Frægasti fugl í heimi.
Þessi mynd, sem hér birtist er
af fröken Mary Bodie, en hún
vinnur hjá PAA í Detroit í Banda-
ríkjunum, og heimsfrægum erni,
sem ber nafnið hr. Ramshaw, en
hann var farþegi í PAA-flugvél,
sem flaug beint frá London til
Detroit. Þetta er taminn örn, 13
pund að þyngd með sjö feta
vængjahafi og keyptur af dýragarð-
inum í Detroit af C. W. R. Knight
kapteini, sem er brezkur ferðamað-
ur og fyrirlesari. Hr. Ramshaw er
talinn þekktasti fugl veraldarinn-
ar og hefir komið fram í mörgum
kvikmyndum og ennfremur í sjón-
varpi.
Hann hefir farið yfir Atlantshaf-
ið allmörgum sinnum, en alls er
ferðalag hans um heiminn orðið
250.000 mílur. í síðustu ferð sinni
naut hann þeirra fullkomnustu
þæginda, sem völ er á, þar sem
hann hafði til umráða allt fram-
rúm vélarinnar (DC-7 Clipper).
Án efa hefir honum fallið þetta
ferðalag betur en þegar hann fór
með skipi yfir Atlantshaf snemma
í síðasta stríði.
Þá var hann neyddur til þess að
kveðja Knight kaptein á miðju
hafinu, þegar öllurn um borð var
skipað að yfirgefa skipið, er það
varð fyrir sprengju þýzks kafbáts.
Hr. Ramshaw neitaði að yfirgefa
hið dæmda skip, en sem betur fór
hélst það á floti.
Að þessu sinni fór PAA-vélin
með hr. Ramshaw 3.600 mílur til
Detroit á rétt rúmum 11 klukku-
stundum, eða með 328 mílna hraða
á klukkustund, sem er talsvert
mikill hraði jafnvel fyrir örn.
FLUG - 25