Flug : tímarit um flugmál - 01.12.1956, Síða 18
irfarandi hugmynd urn þetta lítt
þekkta fyrirbæri hérfendis:
Halldór segir að flugskátasveit-
ir séu víða starfræktar erlendis og
annist þar mörg og mikilvæg mál-
efni er flugi koma við.
Hér á landi var þessi sveit stofn-
uð 7. des. 1955 sem deild í Skáta-
félagi Reykjavíkur. Er hún eina
flugskátasveitin sem enn hefir ver-
ið stofnuð hér á landi.
Halldór segir að meðlimir flug-
skátasveitarinnar séu fyrst og
íremst skátar. Fara þeir að jafnaði
í útilegur svo sem skáta er venja,
mæta á sameiginlegum fundum
Reykjavíkurskáta og taka þátt í
allri deildastarfsemi skátanna.
Taka sérpróf um flugmál.
Hins vegar hafa allir skátar ein-
hverjar sérgreinar innan síns félags
og skipta sér eftir þeim niður í
sveitir. Flugmál og þá fyrst og
fremst módelsmíði, enn sem kornið
er, er sérgrein flugskátanna. Á
þessu sviði taka þeir sín sérpróf.
Flugskátarnir eiga sem aðrir
sína framtíðardrauma. Þeir hafa
hugsað sér að vinna að því marki
að koma sér upp svifflugflota og
jafnvel með tíð og tíma flugflota
til þess að geta annast björgunar-
starfsemi.
En snúum okkur nú að hinni
daglegu starfsemi þessarar sér-
stöku sveitar.
Sveitinni er skipt niður í fjóra
flokka og eru að jafnaði 8 dreng-
ir í hverjum flokki. Fundir um
sérstök málefni flokkanna eru
haldnir einu sinni í viku. Er á
þessurn fundum unnið að módel-
smíði og stundað bóklegt nám jafn-
framt. Síðan eru tekin próf, sem
merkt eru bókstöfum A, B og C
o. s. frv. sem samsvara nýliðapróf-
um 2 og 3. fl. hjá öðrum skátum.
Þessi námskeið ásamt módelsmíð-
inni eru undirstaða svifflugsins,
sem síðan er undirstaða vélflugs-
ins. Þannig er þessu ætlað að þró-
ast fram á leið með árunum, en að
sjálfsögðu er þetta allt á byrjunar-
stigi enn sem komið er.
Áhugi mikill.
Halldór Arnórsson er aðeins 17
ára, en félagar hans í sveitinni eru
á aldrinum 11 til 20 ára. Hann seg-
ir að áhugi sé mikill innan sveitar-
innar og að drengir sæki fast að
fá ag gerast félagar. Hins vegar
segir hann að enn sem komið er
sé þátttaka takmörkuð og ber þar
margt til, svo sem húsnæðisskortur,
takmörkun á kennslumöguleikum
svo að enn er þessi starfsemi á
byrjunarstigi. Inntökugjaldið er 50
krónur.
Til þessarar starfsemi þarf
mikla peninga, en þeir eru af
skornum skammti, enda finnst
drengjunum skilningur á starfi
þeirra meðal ráðamanna enn næsta
lítill. Má geta sér til að bráðlæti
þeirra ráði þarna nokkru um, svo
og lofsverður áhugi þessara æsku-
manna.
Halldór segir að þetta starf
drengjanna sé lærdómsríkt og
þroskandi auk þess að vera góð
tímaeyðsla. Margt það, sem þeir
læra getur komið sér vel fyrir þá
á lífsleiðinni jafnvel þótt þeir
verði aldrei starfandi flugmenn.
Flugskátarnir eru með starfsemi
sína í húsnæði hjá Flugfélagi ís-
lands. Aðsóknin er sem fyrr segir
mjög mikil og það svo að þeir
félagar hugsa sér að reyna að koma
upp 5. flokknum nú á næstunni.
„Flug“ vill nota þetta tækifæri
til þess að óska flugskátunum gæfu
og gengis í starfi þeirra í framtíð-
inni.
Flugskátasveitin í heimsókn hjá Flugfélagi íslands á Reykjavikurflugvelli.