Herjólfur - 01.09.1940, Blaðsíða 3
VESTMANNAEVJUM f SEPTEMBER 1940
^esfmannaeijjum.
<S/Yú’ 2&ofí Uuðmundsso7i, kennara.
Ég hefi verið beðinn um að segja
hér eitthvað frá Vestmannaeyjum. Er
mér ljúft að verða við þeirri bón, þó
að ég verði að byrja mál mitt með
þeirri játningu til ykkar, að til þessa
verks myndu margir hafa verið mér
hæfari, fyrir ýmsra hluta sakir, og
þá einkum vegna þess, að ég er ekki
innfæddur Vestmannaeyingur, og því
ekki eins fróður m margt viðvíkj-
andi sögu þeirra og náttúrufræði sem
skyldi og sem ég sjálfur hefði helzt
kosið. Ég hefi dvalið í Vestmanna-
eyjum um sex ára skeið, og get því
frekar sagt frá þeim og íbúum þeirra
frá sjónarmiði gestsins, eða ferða-
mannsins, heldur en frá sjónarhóli
hins innfædda manns, sem hefir alizt
upp við og þroskast með þarlendu
umhverfi og þjóðlífsháttum. Mun ég
því velja mér þann kost, að fara sem
minnst út í söguleg eða strangfræði-
leg efni, en halda mér sem mest að
frásögn r.m Eyjarnar, íbúa þeirra og
lifnaðarhætti, eins og þeir hafa kom-
ið mér fyrir sjónir, við dvöl mína
þar. Verða því þau orð, sem ég segi
hér, fyrst og fremst að skoðast sem
mitt persónulega álit, sem þó auð-
vitað stendur og fellur með athyglis-
hæfileikum mínum og dómgreind, eða
kannske skorti á athyglishæfileikum
og dómgreind, en ekki sem neinn óvé-
fengjanlegur dómur eða tæmandi
rannsókn á verkefninu. Bið ég hátt-
virta lesendur mína, og þá sérstak-
lega þá Vestmannaeyinga, sem mál
mitt kunna að heyra, að virða það
á betri veg, sem áfátt kann að verða
við frásögn mína.
Það mun vera mála sannast um
Vestmannaeyjar, að þó að þær séu
ekki nema örlítill blettur af okkar
litla landi, þá eru þær sá bletturinn,
sem einna örðugast mun vera að
lýsa, svo að gagni komi, eða að það
gefi ókunnugum tæmandi eða sanna
og skýra hugmynd, allra sízt í stuttu
máli. Á þessum litla bletti er meira
samankomið af sterkum og fjöl-
breyttum andstæðum, landfræðileg-
um, náttúrufræðilegum og þjóð-
fræðilegum, heldur en víðast hvar
annars staðar á landinu. Flest það,
sem finna má í íslenzku landslagi, er
þarna að finna. Fjöll, með hrikaleg-
ustu hamrabeltum, hraun, eldgígi og
hella, sæbrött björg, brimsorfna