Herjólfur - 01.09.1940, Blaðsíða 12

Herjólfur - 01.09.1940, Blaðsíða 12
10 HERJÓLFUR r7/oí/ð emgoncfu CAMP eldspýtur ^jDLSt aíhtobúX um virðist sem bylgjurnar ætli að grafa þá í skauti sínu með öllu. En áfram halda þeir. Þarna má engu muna, vélin, báturinn og maðurinn, sem við stjómvölinn stendur, verða að vera ein traust og samvirk heild ef vel á að fara. Brimrótið skellur við snarbratt bergið, öðrumegin Víkur- innar og að klöppum og flúðum hinu megin. Við hliðið milli hausa hafnargarðanna er þó hættan einna mest. Það bil er mjótt og þar má engu skeika, svo brimið hrifsi ekki bátinn í greigar sínar og moli hann við garð- ana. Þegar þar að kemur hægja bát- arnir dálítið á ferðinni og bíða lags ... lagið kemur, vél þess bátsins, sem nær er bilinu, er knúð á fulla ferð og innan skamms er hann kominn í traust var innan garða.og heldur nú upp að bryggjunum. Sá næsti bíður annars lags, hagar ferð sinni vel og allt fer á sömu leið. Loks eru allir bátarnir, er í róður lögðu um nóttina, komnir aftur heilu og höldnu til hafnar ... nema tveir. Enn dokar fólkið við nokkra stund á Skansinum. Nú fer'að dimma og enn eykst sjór. Gamall og reyndur sjó- maður, er þarna stendur, hefir orð á því, að þýðingarlaust muni að bíða lengur ... Leiðin sé nú ófær. Áhorf- endurnir dreifast og halda heim til sín. Á leiðinni heim mæta þeir fólki, sem spyr, hvort það viti um bátana ... jú, þeir eru allir komnir að, nema tveir. Svo eru sögð nöfn þeirra . .. og innan skamms vita allir í bænum, að enn eru tveir bátar ókomnir úr róðri og Leiðin er talin lítt fær. Myrkrið færist yfir. I aðgerðarhús- unum vinna landmennirnir af kappi við að gera að þeim afla, sem á land hefir borist. Þaðan hljóma hlátrar, mas, fyrirskipanir og allskonar kliður út á forugar og myrkar göturnar. Það er landlega fram undan, en það þýðir sama og að í kvöld verði dans- leikir haldnir í samkomuhúsum bæj- arins. Ef til vill eru menn þegar farn- ir að ræða um þá skemmtun, sem þar kunni að bíða þeirra og stríða hver öðrum í því sambandi. Kvöldið líður og nóttin dettur á. Enn er veðrið líkt og það var. I samkomuhúsum bæjarins er dans- inn stiginn af kappi eftir dynjandi

x

Herjólfur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Herjólfur
https://timarit.is/publication/1871

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.