Herjólfur - 01.09.1940, Blaðsíða 16

Herjólfur - 01.09.1940, Blaðsíða 16
14 HERJÓLFUR Slippfélagið í Reykjavík Símar: 2309 - 2909 - 3009 SÍMNEFNI: SLIPPEN Hreinsum, málum, fram- kvœmum aðgerðir á stœrri og minni skipum. Fljót og góð vinna. Speí&ð íííóoða hfú oss, dðui’ ert þéc faríð annað. I fyrstu rákum við upp stór augu, öldungis forviða, en þegar hann gerði þetta að kappsmáli, urðum við vitan- lega öskuvondir, og héldum, að hon- um kæmi lítið við, hvað við rauluð- um okkur til gamans. Jón vitnaði í skoðanafrelsispraragraffinn, minnt- ist meira að segja á prentfrelsi og trúfrelsi, — en ekkert stoðaði. Ég gat ómögulega skilið, hvað að manninum gengi. Að vísu þekki ég það, að viss lög eða textar geta „far- ið í taugarnar" á fólki, — en þetta var engu slíku líkt, það var eins og sálarvelferð mannsins væri í húfi. — Hvern djöfulinn ætlið þið elskið hafið — eða hvaða ástæðu þykist þið hafa til þess? hreytti hann út úr sér. Þið hafið sjálfsagt aldrei á sjó komið, og vitið ekkert, hvað þið eruð að segja. Það leyndi sér ekki, að maðurinn var fullur. — Ég tók upp þykkjuna fyrir mitt haf, sem ég þykist hafa elskað, frá því að ég var barn. Ég var rétt í þann veginn að uppbyrja fræðilegt erindi um hagnýta þýðingu hafsins fyrir hina íslenzku þjóð, um endurreisnina, sem byggð væri á fisk- veiðunum, — þegar mér æði frunta- lega er sagt að halda kjafti. Jón og Gvendur tútnuðu út af vonzku fyrir mína hönd, og Jón spyr manninn stutt og laggott, hvort hann vilji slást. Já, hann heldur nú það — hann skuli „lakka“ okkur til, alla með tölu. Nú byrjar Gvendur á ný: „Ég elska hafið æst —“, ofurlítið hjá- róma — og ég veit ekki hvaða vernd- arengill stýrir flöskunni, sem nú kemur fljúgandi, fram hjá hausnum á Gvendi, og upp í horn. Maðurinn var nú sýnilega yfir sig vondur, og félagi hans, er hjá hon- um situr, grípur yfir um hann og reynir að halda honum í skef jum. — Bað hann okkur jafnframt blessaða að hætta þessum söng. Gvendur Páls, sem ekki hafði til fulls skynjað, hver voði honum hafði verið búinn, bauð nú f jandmanni sín- um í heiðarlegan slag að Álafossi — maður á móti manni. Kvaðst hann mundi gera hann að spítalamat á fimm mínútum. Þegar út úr bílnum kom, var þar

x

Herjólfur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Herjólfur
https://timarit.is/publication/1871

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.