Herjólfur - 01.09.1940, Blaðsíða 11

Herjólfur - 01.09.1940, Blaðsíða 11
HERJÖLFUR 9 eða að fá sér hressingu .. . þeir hafa hlaupið beina leið niður á bryggju til að skoða fiskinn. Og innan stundar eru bryggjurnar þaktar fiskkösinni, sem hent er upp úr bátunum. Allt er atað í blóði og slori .. . mennirnir, sem standa við kasirnar og kasta fiskinum upp á bíl- ana .. . bílarnir, sem ösla innan um þær og fara hverja ferðina af ann- arri upp að aðgerðarhúsunum, hlaðn- ir fiski. . . Og strákarnir, sem klöngr- ast yfir fiskinn niður í bátana og síð- an bát úr bát. Þeir eru að vísu í skólafötunum, sumir hverjir ... en það er ekki svo gott að verjast slor- slettunum, og auk þess heyrir það blátt áfram til, að upprennandi sjó- mannaefni, séu svolítið slorug .. . Þeir af fullorðnum mönnum, sem þarna eru staddir á bryggjunum, í sama augnamiði og drengirnir, sem sé aðeins til þess að skoða aflann, eru léttir á svip, þegar þeir sjá hversu mikið af fiski kemur upp úr bátun- um. Flestir þeirra hafa stundað fisk- veiðar, einhvern hluta æfi sinnar, ef til vill mestan hluta hennar, þó þeir séu nú, elli eða annarra orsaka vegna, hættir að heyja hildi við Ægi konung, og leita gulls í greipar hans. Með sömu gleði og dalabóndinn lítur yfir fjár- rétt, troðna af lagðfögru og feitu fé, líta þeir yfir þorskinn á bryggjunum. Rokið eykst jafnt og þétt, svo ill- stætt fer að verða á bryggjunum fyrir sjóroki, nema því betur hlífðar- klæddum mönnum. Enn eru þó ekki allir bátarnir komnir að. Það fer að verða illfært inn leiðina, en svo er inn- siglingin um Víkina venjulega kölluð, ef nokkuð versnar í sjó. Og enn streymir fólk út á Skans- inn. 1 gærkvöldi fór það þangað til þess að sjá bátana leggja út á fiski- miðin í kyrru veðri og lygnum sjó. Nú fer það þangað til að horfa á þá síðustu þeirra leita til hafnar í ofsa- roki og brimæstum sjó. Særokið lemur andlit þess, þar sem það stendur og starir út á Víkina. Þarna sést til tveggja báta koma fyr- ir Klettinn. Þeir fara langt frá hon- um, til að forðast brimrótið og frá- kast þess. Svo leggja þeir inn á Vík- ina. Særótið byltir þeim til, og stund- Mmím CIIÐI8. VIKA8 Laugaveg 17. — Reykjavík. Venjulega úrval af innlendum og erlendum fataefnum. Vöndud vinna Gjörið svo vel og líta inn ef þér eruð á ferð Prenimyndagerðin ÓEafur J. Hvanndal Laugaveg 1. Sími 4003. Símn.: Hvanndal. Fyrsta prentmyrtdagerd landsins Búum til allar Prent- myndir i öllum stcerdum. 20 ára reynsla. Adeins vönduð vtnna.

x

Herjólfur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Herjólfur
https://timarit.is/publication/1871

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.