Herjólfur - 01.09.1940, Page 13

Herjólfur - 01.09.1940, Page 13
HERJÓLFDR 11 jasshljómleik. Aðgerðarmennirnir og sjómennirnir fjölmenna þar prúðbún- ir, og skildi enginn á þeim mönnum sjá, að fyrir skammri stundu hefðu þeir verið ataðir fiskslori upp fyrir haus eða nýsloppnir úr bardaganum við brimið og rokið. Þarna dansar fólk úr öllum fjórðungum og flestum sýslum landsins, því alltaf er margt að komumanna, sem atvinnu sækir til Eyja um vertíðina. Sennilega hafa þau aldrei sézt áður, norðlenzki pilt- urinn og Austfjarðastúlkan, sem dansa þarna saman ... en hvað um það ... það verður heldur ekki á neinu séð. Frammi í anddyri standa nokkrir menn í háværum samræðum. Það er fljót séð og heyrt, að þeir hafa ekki farið allsendis nestislausir á dansleikinn, en það er ekki meira en gera má ráð fyrir á svona nóttum. Og þó það hendi, að samræðurnar verði ef til vill helzt til háværar og gangi jafnvel svo langt, að hnefar séu látnir skera úr því, hver réttast hafi fyrir sér, þá jafnast það allt fljótlega, svona af sjálfu sér, og þeir hinir sömu skilja sem beztu vinir. Hljómleikurinn hættir sem snöggv- ast. Fólkið, sem dansar, nemur stað- ar og bíður ... Hvað er nú ... þJngur maður hefir rutt sér braut upp að leiksviðinu, þar sem hljóm- sveitin leikur. Hann ætlar að tilkynna eitthvað, þar er auðséð ... og eftir- væntingin eykst. Flöskur og glös. Vid kaupum daglega lyrst um sinn allar algengar tegundir af tómurn flöskum og ennfremur tóm glös af öllum tegundum, sem frá okkur eru komin, svo sem und- an bökunardropum, hárvötnum og ilm- vötnum. — Áfengisverzlun ríkisins.

x

Herjólfur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Herjólfur
https://timarit.is/publication/1871

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.