Árbók Tryggingarstofnunar ríkisins - 01.12.1942, Blaðsíða 20
18
lagssvæðinu, rétt og skyldu til að tryggja sig í sainlaginu, enda sé hann
ekki haldinn alvarlegum, iangvinnum, virkum sjúkdómi, og fer um
þetta eftir nánari ákvæðum í reglugerð. Á sama hátt er mönnum, sem
dvelja á samlagssvæðinu eða stunda þar atvinnu lengur en sex mánuði
og ekki eru í samlagi annars staðar, heimilt að tryggja sig í samlaginu
með sömu réttindum og skyldum og þeir, sem eiga þar lögheimili. Þó
nær sú trygging ekki til fjölskyldu mannsins, ef hún dvelur utan sam-
lagssvæðis.
Þeir, sem haldnir eru alvarlegum, langvinnum, virkum sjúkdómi,
ciga rétt á að tryggja sig' gegn öðrum óviðkomandi sjúkdómmn. Menn
(17 ára og eldri eiga rélt á tryggingu með sömu skilyrðum og aðrir, en
eru ekki tryggingarskyldir.
33. gr. —- í samþykktum sjúkrasamlaga skal tekið fram, hverra rétt-
inda samlagsmenn njóta. Ætíð skal þó sjúkrasamlag veita þá hjálp
vegna veikinda, sem hér er talin:
1. Alinenn læknishjálp hjá tryggingalækni, þ. e. lækni, sem samlagið
hefur samið við eða Tryggingastofnunin fyrir þess hönd, að fullu í
sjúkrahúsi og hjá samlagslækni sjúldingsins á umsömdum vinnu-
tíma læknisins, og að •% hlutuin, ef sjúklingurinn vitjar annars
læknis en samlagslæknis sins, enda séu slíkar vitjanir heimilaðar í
samþykktum samlagsins eða í samningum þess við lækna. Læknis-
hjálp fari fram í viðtalsstofu lreknis, sé sjúklingurinn ferðafær og
hægt að koma því við.
2. Lyf og umbúðir, sem Tryggingastofnun rikisins leyfir samlögun-
uin að greiða, skal greiða að fullu í sjúkrahúsi. Utan sjúkrahúss
skal greiða að fullu fyrir þau lyf, sem sjúklingum er, að dómi sam-
lagslæknis, Hfsnauðsyn að nota að staðaldri, og að % fyrir önnur
nauðsynleg lyf, en heimilt er að takmarka frekar greiðslur fyrir lyf
að öðru leyti. Tryggingastofnun ríkisins lætur gera skrá um þá
lyfjallokka, sem um ræðir hér að framan.
3. Ókeypis vist eftir ráði samlag'slæknis í sjúkrahúsi, sem samlagið
hefur samið við, eða Tryggingastofnun rikisins fyrir hönd þess.
4. Fæðingarstyrk, er eigi sé lægri en kr. 40.00, auk verðlagsuppbótar.
Enn fremur er sjúkrasamlögum skylt að greiða dvalarkostnað
sængurkvenna í sjúkrahúsi eða fæðingarstofnun, sem samlögin
hafa samið við, ef samlagslæknir telur það nauðsynlegt vegna
heilsu konu eða barns, eða af öðrum knýjandi ástæðum, enda greið-
ist þá ekki fæðingarstyrkur.
5. Röntgenmyndir og röntgenskoðun greiðist að %, samkvæmt taxta,
er heilbrigðisstjórnin ákveður.
6. Sjúkrasamlögum er heimilt að ákveða í samþykktuin sínum að
tryggja gegn sérstökn iðgjaldi þeim meðlimum sínum, sein þess
óska, dagpeningagreiðslu, er þeir verða óvinnufærir sökum veik-
inda, svo og að ákveða slíka dagpeningatryggingu fyrir alla með-
limi sína. Nánari reglur um dagpeningatryggingu skal setja í sam-