Heimili og skóli - 01.06.1942, Síða 3
Heimili og skóli
TÍMARIT UM UPPELDISMÁL
1. árgangur. Marz-Júni 1942. 2.—3. hefti.
Dr. phil. Símon Jóh. Ágústsson:
Unglingsárin
Unglingsárin eru ef til vill mikil-
vægustu tímamót í ævi mannsins.
t*au eru í einu prófsteinn á uppeldi
bernskunnar og á hæfileika og skap-
gerð unglingsins sjálfs.
Unglingsárin eru venjulega talin
hefjast með kynþroskaskeiðinu, eða
við 12—14 ára aldur. Kynþroskinn
og breytt starfsemi lokuðu kirtlanna,
sem honum eru samfara, hafa afar-
djúp áhrif á sálarlífið. Þessi breyting
er alltaf svo gagnger og oft svo snögg,
að byltingu má telja. Unglingnum
opnast nýr heimur og hann vaknar til
nýs lífs. Þetta rót, sem kemst á sálar-
Hf unglingsins, lægir svo smám sam-
an, hann „sezt“ og verður stöðugri í
rásinni. Fullorðinsárin taka þá við,
og er talið að þau hef jist yfirleitt við
20—22 ára aldur.
Unglingsárunum og hinum sér-
stöku uppeldisvandamálum, sem
þeim fylgja, hefir því miður verið
gefinn alltof lítill gaumur hér á landi.
Flest það, sem ritað hefir verið á ís-
lenzku um sálarlíf bama og uppeld-
ismál varðar börn, sem enn eru ekki
komin á kynþroskaskeiðið. Verður
hér í þessari grein vikið mjög stutt-
lega að því helzta, sem einkennir sál-
arlíf unglinga.
Símon Jóh. Ágústsson.
Við 12—13 ára aldur, eða áður en
kynþroskaskeiðið hefst, er barnið í
heilbrigðu jafnvægi, en er það fer að
kynþroskast, kemst það í félaslegt
og sálrænt jafnvægisleysi, sem lýsir