Heimili og skóli - 01.06.1942, Side 4

Heimili og skóli - 01.06.1942, Side 4
18 HEIMILI OG SKÓLI sér á ýmsan hátt. Kynvitund ungl- ingsins verður miklu gleggri en áður, ýmsar líkamlegar breytingar eiga sér stað, sem hér er óþarfi að rekja. Hann verður næmari fyrir áhrifum og finnur oft til þyngsla og þreytu. Sálarlíf hans verður auðugra og fjöl- breyttara, hann sökkvir sér niður í djúpa dagdrauma. Unglingnum finnst öll reynsla sín, gleði og sorg, vera einstæð, persónuleikavitundin þroskast og sjálfsvitund hans er mjög rík. Hann er ekki eins og hinir, hann er borinn til einhvers sérstaks hlutverks. Af þessu leiðir, að sjálf- stæðisþrá hans er mjög sterk. Hann afþakkar leiðsögn foreldra og vanda- manna, hann vill sjálfur velja og hafna, hann skuldar ekki neinum neitt og á engum neitt að þakka. Á vitræna sviðinu verða samsvarandi breytingar og á tilfinningalífinu. Áð- ur var barnið aðallega þiggjandi, móttakandi, en unglingurinn er gef- andi, skapandi- Sjálfsgagnrýni vex og sjálfstæði í hugsun. Fram til þessa hefir barnið verið spegilmynd af skoðunum annara, einkum foreldr- anna. En nú snýst blaðið við. Ungl- ingurinn fer að meta gildi hugsana sinna og þeirra skoðana, sem hann hefir óafvitandi drukkið í sig. Hann sökkvir sér niður í sjálfsrannsökun og myndar sér sjálfstæðar skoðanirí andstöðu við foreldra og uppalendur sína, og heldur mjög fast við þær. Þessi hugsunarháttur hefir mikil áhrif á almenna hegðun unglingsins. Hann þráir að losna undan oki fjöl- skyldulífsins, hann segir skilið við gamla félaga og velur sér aðra nýja. Hann vill vera sjálfstæð persóna. Hann gerir kröfur til meira frelsis: að fara út með félögum sínum, koma seinna heim á kveldin, eignast eitt- hvað, sem hann getur ráðstafað að vild sinni, hafa herbergi út af fyrir sig o. s. frv. Jafnframt þyí, sem hann losar sig úr hinum gömlu félagsbönd- um, tengir hann önnur ný, og er þátt- takandi í allskonar félagsskap. Hann sýnir þessum félögum fórnfýsi og trúnað og leggur á sig hvers konar erfiði til að komast þar til álits. Er skiljanlegt, að þrá unglingsins til sjálfstæðis verður þess oft valdandi, að hann kemst í andstöðu við for- eldra sína og kennara. Þá ber mikið á óljósri útþrá og framalöngun hjá unglingnum. Hann langar eitthvað langt í burt, hann vill reyna mátt sinn og megin, óstuddur af foreldrum sín- um. Hann vill verða mikill maður, hann trúir því, að hann sé kallaður til að gegna einstæðu og miklu hlut- verki í lífinu og tekur sér í munn orð Haralds Sigurðssonar: Hver veit nema ég verði víða frægur um síðir. En þrátt fyrir framgirni sína er unglingurinn, einkum pilturinn, venjulega mjög dulur, feiminn og ó- framfærinn. Unglingsárin eru tími draumóra. Þótt hann sé starfsamur og framtakssamur á þeim sviðum, er hann sjálfur hefir valið, er hann um fram allt skáld og heimspekingur. Honum finnst hann oft vera hræði- lega einmana. Honum finnst enginn skilja sig. Hann þráir heitt einlæga vináttu einhvers, sem hann getur sagt hug sinn allan og trúað fyrir hugsun-

x

Heimili og skóli

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.