Heimili og skóli - 01.06.1942, Blaðsíða 5

Heimili og skóli - 01.06.1942, Blaðsíða 5
HEIMILI OG SKÓLI 19 um sínum og leyndarmálum. Við þessa einmanaleikatilfinningu bland- ast svo hið sérkennilega, angurblíða œskuþunglyndi, sem stundum getur þó nálgast örvæntingu og jafnvel leitt til sjálfsmorðs. Oft leggur hann ofurást á einhvem mann, venjulega sér eldri mann, sem hann tilbiður í leyni og tekur sér til fyrirmyndar. Þannig myndast í leyni manngildis- hugsjón hans. Fyrirmyndin er oftast menn, sem hann umgengst ekki dag- lega eða þekkir ekki mjög náið, t. d. kennari hans, vinur fjölskyldunnar, sem kemur stöku sinnum, einhver þjóðfrægur maður, sem hann þekkir ekki persónulega, eða jafnvel einhver söguleg persóna. Vinátta milli jafn- aldra unglinga, sem stofnað er til á þessum ámm stendur sjaldan allt líf- ið. Það er eins og sálgerðin hafi enn ekki fengið nógu fast form til að geta myndað gmndvöll undir ævilanga vináttu. Æskuástir fymast oftast nær, nema menn „finni æskuvini sína aftur“ seinna í lífinu, þ. e. byggi ást- ina eða vináttuna upp á nýjum grundvelli. Munurinn á sálarlífi pilta og stúlkna kemur fyrst greinilega í ljós á kynþroskaskeiðinu. Drengnum er einkum í muna að sýna vald sitt. Hann vill verða áhrifamikill og fræg- ur maður. Hann elskar frelsið og gerir því oft uppreisn gegn kennurum sín- um og foreldrum. Hann dreymir um ævintýri og mannraunir, þar sem hann getur neytt allra hæfileika sinna. Hann kann vel við sig í hávaða og gauragangi, er þrætugjam, áfloga- samur, eyðslusamur og gjafmildur. A hinn bóginn er hann dulur og draum- lyndur, ennþá dulari en telpan, sem er tiltölulega opinskárri á þessum ár- um. Það er yfirleitt léttara að skilja sálarlíf unglingstelpunnar en ung- lingspiltsins, því að hún kann ekki eins vel að dylja hugsanir sínar og á- form. Yfirleitt stendur umrót kyn- þroskaskeiðsins miklu lengur yfir hjá piltinum en stúlkunni. Hún verður fyrr ráðsett, nær fyrr jafnvægi sínu, og ró og festa fullorðinsáranna koma fyrr yfir hana. Pilturinn er miklu lengur óráðinn- Við emm venjulega miklu lengur í vafa um, hvernig skap- gerð hans ræðst. Ólga æskunnar sýð- ur miklu lengur í blóði hans. Margir karlmenn eru ekki farnir að „setjast“ fyrr en undir þrítugt. Unglingurinn uppgötvar ekki að- eins þýðingu sína fyrir heiminn yfir- leitt, heldur verður honum og ljós afstaða sín til hins kynsins. Kynhvöt- in vaknar nú fyrir alvöm, og hugsun unglingsins snýst nú að miklu leyti um hitt kynið. Kynhvötin gerir ekki fyrst vart við sig með líkamlegri ástríðu, heldur með óljósri þrá, dag- draumum og kynórum. Honum finnst líkamleg mök helgibrot gagn- vart ástinni, og hann hugsar oftast ekki til þeirra. Hann elskar „í fjar- lægð“, og oftast er hann of feiminn og blygðunarsamur til að láta ást sína í ljós. Unglingsástin er róman- tísk og óholdleg. Unglingurinn lætur sér nægja lítilsháttar „flirt“, en sökkvir sér því dýpra niður í ásta- drauma. Þessir ástadraumar eru eðli- legir á þessu skeiði ævinnar, ungl- ingnum virðist eðlislægt að elska á

x

Heimili og skóli

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.