Heimili og skóli - 01.06.1942, Page 7

Heimili og skóli - 01.06.1942, Page 7
HEIMILI OG SKÓLI 21 Hannes J. Magnússon: Hvað er framnndan? Eitt sinn hittust tvær nágranna- konur á fömum vegi og varð sundur- orða út af smámunum. Senna þeirra jókst orð af orði, þar til þær kunnu ekki lengur að stilla orðum sínum í hóf, en þegar deila þeirra stóð sem hæst kallaði einhver, að barn hefði dottið í ána. A einu andartaki gleymdu konurnar deiluefni sínu og hlupu hlið við hlið niður til árinnar. — Ef til vill er það barnið mitt! — hugsuðu þær báðar. Sameiginleg hætta dró þær saman þessar konur, og allt annað gleymist þessa stund en það, að ef til vill væri barnið þeirra í hættu. Við lifum á tímum stéttaskiptinga og flokkadrátta. Það er eins og oss gleymist það stundum, að yfir oss öllum hvelfist hinn sami himinn, og að öll stöndum vér á hinni sömu jörð. En þrátt fyrir allt það, sem skilur oss að og greinir okkur í stéttir og flokka, er hitt þó miklu fleira og sterkara, sem sameinar okkur öll, hvar í sveit sem við stöndum, og eitt af því er spurningin um framtíð barna vorra. Það áhugamál allra foreldra er hafið yfir stéttir og flokka, það er einn af hinum ósýnilegu, vígðu þáttum menningarinnar, sem engin skálm illskunnar fær sundur skorið. ef svo má segja. Þeir verða að stjórna þannig, að unglingurinn finni sem minnst til valda þeirra. Aldrei hefir barnið jafn ríka þörf á því, að for- eldrarnir sýni því samúð, ást og skiln- ing sem á unglingsárunum. Foreldr- arnir verða að eiga traust unglingsins, hann verður að finna, að þeir vilji skilja hann og hjálpa honum í vand- ræðum hans. Foreldrarnir verða að taka tillit til þarfa unglingsins, þeir mega ekki líta á hann eins og smá- barn, heldur sem verðandi persónu, sem er undarlegt sambland úr bami og fullorðnum manni, en þó hvorugt, persónu, sem gerir fyrstu tilraun sína til sjálfstæðrar lífsstjórnar. Foreldr- arnir verða ávallt að fylgja vissum meginreglum um uppeldi bama sinna, en engri siðgæðisreglu má beita án víðsýnis og umburðarlyndis. Menn mega ekki ætla sér að steypa unglinginn í sama mótinu og þeir sjálfir voru. Þeir mega ekki aga og ávíta í tíma og ótíma. Allt uppeldi hefir það markmið, að gera hinn unga mann að lokum hæfan til sjálfstæðr- ar lífsstjórnar, án tilsjónar eða íhlut- unar foreldra eða annara uppalenda. Foreldrarnir verða því að skilja hlut- verk sitt þannig, að þeir nálgist það æ meir, eftir því sem unglingurinn þroskast, að vera vingjarnlegir áhorf- endur og leiðbeinendur, sem hafa yndi af því, að sjá hvernig ungmenn- ið verður æ færara um að ráða sjálft fram úr vandamálum sínum.

x

Heimili og skóli

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.