Heimili og skóli - 01.06.1942, Síða 12

Heimili og skóli - 01.06.1942, Síða 12
26 HEIMILI OG SKÓLI né innrætir því fórnarlund kærleik- ans. í skáldsögu einni eftir Aldous Huxley er meistaraleg lýsing á trúar- og siðgæðisáhrifum móður á barn sitt. Höfundurinn er, sem kunnugt er, einn gagnmenntaðasti og djúpsæ- asti höfundur yngri kynslóðar Stóra- Bretlands, svo að ætla má, að orð hans séu ekki marklaus- — Á grasflöt utan við hús sitt situr móðirin og les upp úr nýja testamentinu fyrir drenginn sinn. Hún les páskafrásöguna. Drengurinn hlustar hugfanginn. Allt í einu verður sál hans gagntekin af djúpri þrá eftir því að verða góður, eftir því að gjöra það eitt, sem sé fag- urt og göfugt. Og tárin koma fram í augu hans. — Það væri mikils um það vert ef löngunin eftir því að lifa sönnu lífi gæti vaknað í sál hvers barns þegar í æsku, ef hið æðsta fordæmi næði að kveikja í brjósti þess eld fagurra hug- sjóna og stórra áforma. Þann eld stendur engum nær að glæða í lífi barnsins síns en móður og föður. En því aðeins mun það takast, að hugir þeirra sjálfra séu ekki hnepptir í grimmúðuga fjötra vonlausrar og heillavana lífsskoðunar, heldur skíni þeim úr augum birta lífstrúar og lífs- hamingju, og á heimili þeirra ríki einnig sjálfsagi og heilbrigði í hátt- um. Glöggur kennari sér, þegar bam er selt honum í hönd til náms, hvernig umhorfs muni vera á heimili þess. Hvert barn er örlítil kvísl úr hinni miklu elfu þeirra ætta, sem það er af komið, hneigðir þess, skapsmunir, hæfileikar o. s. frv. eru samkvæmt lögmálum erfða þaðan runnir. En jafnframt er það lifandi mynd þess anda og þess lífsviðhorfs, sem ríkj- andi er á heimili þess. Það má lesa út úr dagfari þess venjur foreldranna, agasemi og áhrif öll, sem það hefir orðið fyrir, bæði heima fyrir og í um- hverfinu. Séu áhrif þessi ekki öll holl verður torvelt fyrir skóla að orka hér á til verulegra úrbóta. Vinni heimilið á einhvern hátt gegn uppeldisleiðsögn kennara og skóla, þá er í hið mesta óefni stefnt og ekki að undra þótt skólagangan reynist þá tilgangslítil. En vitanlega er takmarkið, sem keppa ber að, ennþá nánara samstarf þeirra þriggja meginaðila, sem ann- ast uppeldi æskunnar að meira eða minna leyti, þ. e. heimila, skóla og kirkju. Þótt starfsaðferðir þessara meginstöðva alls uppeldis í þjóðfé- laginu séu ólíkar, á aðalstefnumiðið að vera hið sama, það, að vinna að alhliða þroska hvers einstaklings. Sá einn mun fær til þeirrar leið- sagnar, sem elskar lífið og á sér upp- sprettu sannrar guðstrúar í sál. Að baki öllu uppeldi þarf andi Krists að vaka sem óslökkvandi kraftur, andi fórnar og kærleika, andi trúar og friðar. Gjalddagi tímaritsins Heimili og skóli er 1. júlí. Kennari áorkar meiru með því, hvað hann er, heldur en því, hvað hann veit. — Diesterweg.

x

Heimili og skóli

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.