Heimili og skóli - 01.06.1942, Side 13

Heimili og skóli - 01.06.1942, Side 13
HEIMILI OG SKÓLI 27 Snorri Sigfússon, skólastjóri: H i n i r vígðu þæt t i r (Niðurlag.) Margt er ónumið mönnum í ung- dæmi, því eru skólar settir að skerpa næmi. Þessi gamli rímaði talsháttur um skólana er merkilega raunsannur um starfshætti þeirra, bæði fyrr og síðar. Skólarnir voru frá öndverðu stofnsettir til þess að skerpa næmi, þ.e.a.s. til þess að miðla fróðleik, til þess að skerpa skynsemina og safna fróðleik. Því hlutverki sínu hafa skól- arnir reynzt trúir. Þeir hafa á öllum öldum auðgað mennina að þekkingu og magnað orku mannanna til þess að gera þeim jörðina undirgefna, og ná valdi á öflum náttúrunnar. Þeir hafa fyrst og fremst verið fræðslustofnan- ir, sem miðað hafa aðalstörf sín við þekkingarheiminn, til þess að ná valdi á honum, en minna hirt um að veita þekkingu á heiminum í oss sjálf- um, þeim sálrænu og siðrænu öflum, er með mönnum búa, og ná valdi á þeim. Og það er fyrir vald þessarar efn- islegu þekkingar, að eldsprengjum rignir nú úr fljúgandi loftskipum og tundurskeytum úr kafbátum, svo að eitthvað sé nefnt af þeim undursam- legu uppfyndingum mannanna, sem einna ötulast vinna nú að tortímingu mannslífa og verðmæta í þessum hjartavana heimi. Hið mikla vopn hefir þannig snúist gegn okkur sjálf- um, og fær enginn fyrir séð, hvernig þau endalok verða. Það er stórkostleg íhugunarefni, hversu hörmulega málefnum vorum er nú komið. Og þótt við vonum, að upp rofi og aftur skíni sól, þá er þó hið skelfilega hatur, hinn mikli hjartakuldi og hin ógurlegu morðtól alltaf tilbúin í annan ógnar dans, nema gjörbreyting verði á hugarfari mannanna. Það er þess vegna ekkert undar- legt þótt menn taki nú að íhuga ým- islegt í sambandi við uppeldishætti og uppeldismeðul, sem ríkjandi hafa verið, og grunur hinna beztu manna vakni um það, að hið allt of einhæfa fræðslustarf skólanna hafi ekki verið sem hollast, að allt of lítil áherzla hafi verið lögð á sjálfa mannræktina, á að rækta tilfinningalífið og göfga hugarfarið. Því að það er hverju orði sannara, sem skáldið segir, „að sjálft hugvitið, þekkingin, hjaðnar sem blekking sé hjartað ei með sem und- ir slær“. Þess vegna hefir það verið augljóst nú hin allra síðustu ár, að hér á Norð- urlöndum, a. m. k. í Danmörku og Svíþjóð, og raunar á Bretlandi líka, eru að verða nokkur straumhvörf í skólunum, hjá því sem var fyrir svo sem 20 árum, einkum að því er snert- ir bamaskólana. Og breyting, sem í loftinu liggur, er í því fólgin að sinna meir vilja- og tilfinningalífi bam- anna, veita þeim við og við helgar

x

Heimili og skóli

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.