Heimili og skóli - 01.06.1942, Page 15

Heimili og skóli - 01.06.1942, Page 15
HEIMILI OG SKÓLI 29 Þorsteimm M. Jónssorv Verndun og sóun verðmæta (Kafli úr ræðu við uppsögn Gagn- fræðaskóla Akureyrar 13• maí 1942) .... Öll eigum vér og eignumst einhver verðmæti. Verðmætin eru margs konar. Sumt eru verðmæti, sem vér eigum jafnan tök á að færa oss í nyt allt vort líf. Sumt eru verð- mæti, sem oss eru skömmtuð í smærri eða stærri stíl af höfundi til- verunnar. Sumt eru verðmæti, sem vér öflum oss sjálf með starfi og and- legri og líkamlegri orku. Verðmætin geta verið efnisleg og andleg. Þessi verðmæti eru tíminn meðan vér lif- um, líf vort og þeir hæfileikar og eig- inleikar, sem vér höfum erft frá for- hollu fordæmi, er hann gefur með breytni sinni. En um allt uppeldisstarfið verður að vera náin og góð samvinna milli skólans og heimilisins, ef góður árangur á að nást. Þetta er ríkari nauðsyn en menn gera sér oft grein fyrir. Foreldrunum er nauðsynlegt að þekkja kennarann,ogkennaranum ekki síður foreldrana. Auk þess getur verið margt í fari barnanna, ’sem kennarinn veit ekki um né skilur, nema með viðkynningu við foreldr- ana. Og umfram allt má hvorugur þessara aðila, heimilis eða skóla, missa sjónar á því mikilsverða atriði í samstarfinu að velferð bamsins, að illt og tortryggilegt umtal heimilisins um kennarann, eða kennarans um heimilið, svo að barnið heyri, er eitur í sál þess og spillir, eða jafnvel þurrk- ar út áhrif skólans. Það er því mjög gott og líklegt til heppilegs árangurs um allt starf kennarans og foreldrisins, að þeir hafi við og við samtalsfund:. þar sem vandamálin eru rædd og aðfinnsl- urnar eru bomar fram án þess að börnin heyri, greitt úr flækjum og misskilningi, og samstarfsleiðin mda til næsta áfanga. Hvergi á það sennilega betur við en um þessi efni, að nauðsynlegt er að stilla saman hug og hönd að heilu og göfgu starfi.

x

Heimili og skóli

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.