Heimili og skóli - 01.06.1942, Side 16

Heimili og skóli - 01.06.1942, Side 16
30 HEIMILI OG SKÓLI feðrum vorum og formæðrum, þeir eiginleikar og eðli, er vér höfum hlot- ið í vöggugjöf. Ennfremur reynsla vor og öll sú þekking, er vér verðum aðnjótandi, hvort sem hún fæst í bókum, skólum eða annars staðar. Fjármunir, er vér erfum eða öflum oss. Og ennfremur eru alls konar verðmæti, sem vér eigum sameigin- leg með öðrum mönnum. Verðmæti, sem vér eigum sameiginleg með þjóð vorri. Þau verðmæti eru tunga vor, bókmenntir, þjóðerni og saga, sagan um tilveru og reynslu þjóðarinnar, allt frá upphafi hennar. Tvö aðalöfl togast á í tilverunni. Annað er hinn skapandi máttur, lífið sjálft, en hitt aflið er afl eyðilegging- arinnar með dauðann sem takmark. Og í þjónustu þessara afla er öll til- veran, vér mennirnir líka. Allir þykj- umst vér vilja skipa oss í fylkingu lífsins, í fylkingu máttarins, sem byggir upp, gegn öflunum, sem rífa niður og eyðileggja. Og þetta er í raun og veru vilji og eðli mannkyns- ins, sem með réttu skoðar lífið sem aðalatriði, þótt ill öfl hafi þráfaldlega og næstum því látlaust látið bræður heyja hjaðningavíg, þjóðir og ein- staklinga berast á banaspjótum. Stór hluti mannkynsins vinnur nú að því að framleiða efni og vélar til tortímingar mönnum og alls konar verðmætum. Vér Islendingar erum meðal þeirra fáu þjóða, sem ekki eru knúðar til þess að vinna svona herfi- lega gegn eðli sínu 'og heilbrigði mannlífsins. Vér þurfum ekki að framleiða vítisvélar eða tortíma verð- mætum eða lífi annarra manna. Vér getum haldið áfram á braut þróunar- innar, bætt efnalegan hag vorn og barizt á heilbrigðan hátt fyrir lífi voru. En mér finnst rétt af oss að at- huga vel, hvort vér séum samt að öllu leyti trúir þeirri hugsjón að vernda verðmæti, standa á móti öfl- um eyðileggingarinnar. í stríðslöndunum eru það fyrst og fremst ungir menn og hraustir, sem kallaðir eru á vígvellina til þess að verja land sitt og þjóð, eftir því sem stjórnendur þeirra segja. I okkar landi köllum vér, sem heyrum til eldri kynslóðinni, líka á æskufólkið, menn og konur, fram á þann orr- ustuvöll, sem vér teljum helgan völl; orrustuvöll, sem ekki er hlaðinn val- köstum né blóði drifinn, heldur fram á þann hinn sama orrustuvöll, sem feður vorir og mæður og forfeður í marga liði hafa barizt á. Þar hefir kynslóð eftir kynslóð barizt fyrir til- veru þjóðarinnar, barist fyrir sjálfa sig og boma og óborna arfa. Forfeð- umir hafa að vísu verið mistrúir x þeirri baráttu, en samt eigum vér, sem nú lifum, þeim að þakka dýr- ustu verðmætin, sem vér höfum erft, mörg dýmstu verðmætin, er vér eig- um. Þessi dýrustu verðmæti em tunga vor og bókmenntir. Það em þau verðmætin, sem gefið hafa þjóð- inni tilvemrétt. „Astkæra, ylhýra málið og allri rödd fegra,“ eins og Jónas Hallgrímsson kveður. Mál, sem af mörgum fróðum mönn- um er talið meðal merkilegustu mála veraldarinnar. Mál, sem hefir

x

Heimili og skóli

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.