Heimili og skóli - 01.06.1942, Qupperneq 17

Heimili og skóli - 01.06.1942, Qupperneq 17
HEIMILI OG SKÓLI 31 þolað tímans tönn, sem í aðalatrið- um er hið sama og þegar forfeður vorir stofnuðu þjóðfélag vort. En sem hefir svo mikla sköpunarmögu- leika, að þó að ný hugtök komi, þá má jafnan finna eða búa til íslenzk orð yfir þau. Margir eru skeytingarlausir um meðferð móðurmálsins, bæði í ræðu og riti. Og sumir munu líta svo á, að það geri ekki svo mikið til, þótt ekki sé hirt um meðferð þess, þótt bland- að sé inn í það útlendum orðum, þótt orðskrípi séu notuð, þótt orð séu rangt notuð og gerð að vitleysu, eins og þegar stúlka segir um einhvern pilt, að hann sé sætur, eða snúið sé alveg við hugtökum og sagt t. d. hræðilega góður eða voðalega fallegur. Slíkt heimskar þann, sem iðkar það mál. Rökrétt hugsun krefst rökrétts máls. Hreint mál og góðar bókmenntir eiga jafnan samleið. Maður, sem skrifar slæmt mál, getur ekki skrifað góða bók. Listræn bók er jafnan skrifuð á listrænu, hreinu máli. Þeir snillingar, sem festa mál vort á bókfell á tveim fyrstu ritöld- um vorum, hafa kunnað að hugsa rökrétt. Þeir skrifuðu mál, sem geymzt gat að mestu óbreytt gegn- um aldaraðir, og sýnist vera þannig úr garði gert að vera sem gimsteinn, sem ekki týnir fegurð sinni, þótt þús- undir ára líði; sem tönn tímans vinn- ur ekki á. A því máli skrifuðu þeir bókmenntir, sem verða sígildar, sem geyma listaverk, er sæma snilling- um í fremstu röð andans afburða- manna. Og þrátt fyrir allar hörmung- ar, sem á fyrri öldum hafa dunið yfir þjóð vora, svo sem hafísa og hungur, eldgos og áþján, drepsóttir og dáð- leysi, þá hafa samt einlægt einhverjir snillingar lýst dimmu þjóðlífsins upp með andlegum blysum. A dimmustu hjátrúaröldinni kveður Hallgrímur Pétursson þau trúarljóð, „er lýsti ald- ir tvær“, eins og Matth. Joch. kemst að orði í kvæði sínu um Hallgrím. Skáld, er orti sálm, sem aldrei sýnist ætla að fyrnast. Og á s.l. öld, og það, sem af er þessari öld, á þjóðin mörg skáld og orðsnillinga, er skrifað hafa bækur, er sýna, að ísl. þjóðarsál er enn þróttmikil. Þetta er vor andlegi arfur, vor sameiginlegu andans verð- mæti. En er þá nokkuð að óttast um mál vort, um bókmenntir vorar, um þjóðerni vort? Þjóðin er á tímamót- um. Útlend, sterk áhrif flæða yfir þjóðfélagið. Erlendir menn eru senn og bráðum jafnmargir setztir að í landinu, eins og landsmenn eru margir. Hvað löng þeirra seta verð- ur, veit enginn. Hin beinu og óbeinu áhrif frá þeim eru mjög mikil. Unga fólkið sækist eftir að læra mál þeirra og það út af fyrir sig er ekkert athugavert, þar sem um heimsmál er að ræða með auðugum bókmenntum. En áhrifin frá útlendingunum verða margs konar og ekki öll sem bezt. En engin vörn fyrir þjóðerni vort og tungu er betri en sú, að unga fólkið, þótt það læri erlend mál, læri fyrst og fremst sitt eigið móðurmál og lesi það bezta, er skrifað hefir verið á því, bæði að fornu og nýju, svo sem Heimskringlu, Njálu, Eglu og önnur beztu fornrit vor, lesi ljóð góðskáld- anna, allt frá Hallgrími Péturssyni til

x

Heimili og skóli

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.