Heimili og skóli - 01.06.1942, Side 19

Heimili og skóli - 01.06.1942, Side 19
heimili og skóli 33 Tíminn er verðmæti, hverjum, sem vill nota hann. Æfi allra vor er mjög takmörkuð. Glataður tími er í raun og veru stytting á lífi voru. Vér getum aldrei aftur bætt oss upp þann tíma, sem vér glötum til einskis. „Þess um degi hefi ég glatað“, sagði hinn ágæti Rómverjakeisari Títus, ef ein- hver dagur leið svo, að hann gerði ekki góðverk. „Þessum degi hefi ég glatað“, geta allir þeir sagt, sem láta svo dag líða að vinna ekkert gagn, hvorki sjálfum sér né öðrum. En slík eyðsla og sóun á verðmæti er algeng. Og flest af oss munu oftar en einu sinni hafa fundið til samvizkubits af því að hafa glatað tíma vorum. Og sjálfur get ég sagt það, að ég hefi aldrei séð eins eftir neinu, sem ég hefi eytt til einskis sem tímanum. Einlægt eru nóg not fyrir tímann, svo sem vinna allskonar, lestur, íþróttir eða gera einhverjum öðrum manni lífið bjartara einhverja stund, svo sem að heimsækja sjúkling í sjúkrahúsi, tala við gamlan mann, er sjálfur getur ekki lengur lesið eða unnið, vekja gleði á heimili sínu o. s. frv. Frá því er sagt, að rómverskt skáld, er Flórus hét, hafi eitt sinn mælt við Hadrianus keisara: „Ekki vildi ég vera keisari, ef ég ætti að vinna það til að ferðast um þokuland Breta og þola kuldann í landi þeirra Sky- þarna“. Hadrianus svaraði brosandi: „Og ekki vildi ég vera Flórus og slangra úr einni veitingakránni í aðra og vera étinn af ormum að lokum“. Hadrianus var starfsamur. Hann not- aði vel tíma sinn. Flórus var drykkju- slarkari. Enginn vafi leikur á því, hvor þessara manna hefir lagzt til hinnar hinztu hvíldar með betri sam- vizku. Mikill hluti þjóðar vorrar hefir á liðnum öldum verið fátækur, og stundum svo fátækur að eiga vart málungi matar, en einlægt svo fátæk- ur, að hann hefir þurft að beita allri sinni orku til þess að sjá sér farborða, hefir orðið að nota allt, sem hægt var að nota og spara allt, sem hægt var að spara. Mikil fátækt dregur úr þreki manna og þrótti og skemmir menn á margan hátt. En fátækt þjóðarinnar þróaði þó ýmsa kosti, svo sem iðju- semi, nýtni og sparsemi. Nú er orðin allmikil breyting á þessu. Það, sem af er þessari öld, hefir efnahagur þjóð- arinnar batnað, og svo mjög, að þjóð- in hefir ráðizt í meiri framkvæmdir á tveim seinustu áratugum, en á mörg- um öldum áður. Þegar stríðið, sem nú stendur, skall yfir, þá mátti heita, að meginhluti þjóðarinnar væri vel sjálfbjarga og sæmilegar framtíðar- horfur um batnandi fjárhag manna almennt. En með stríðinu verður stökkbreyting. Fjöldi manna, sem að- eins hafði getað bjargazt áður, fær nú langtum meiri peninga en þeir þurfa að nota. Unglingar, sem áður máttu þakka fyrir að geta unnið sæmilega fyrir sér, fá nú kaup, sem stundum hefir verið hærra en ráðherralaun, eða laun æðstu embættismanna landsins. En jafnframt þessu pen- ingaflóði hefir kaupgirni manna auk- izt og alls konar óhófleg eyðsla, svo að mörg dæmi munu finnast um það,

x

Heimili og skóli

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.