Heimili og skóli - 01.06.1942, Side 23
HEIMILI OG SKÓLI
37
eða einhverju öðru dundi, en þá er
áríðandi að gjöra barninu aðvart
nokkru áður, að nú sé komið að
háttatíma, því að vafalaust á það oft
örðugt með að slíta sig frá viðfangs-
efninu, og enginn skyldi fyrirvara-
laust taka leikföngin af baminu og
reka það í rúmið, barn, sem fyrir því
verður, sofnar ekki ánægt.
Annars er það svo, að börnin
kunna ýmsar aðferðir til að teygja
tímann og draga allt á langinn, meðal
annars með óþrjótandi spurningum
og skrafi. En þegar verið er að festa
einhverjar hollar uppeldisvenjur
má ekki viðhafa neitt hik eða hálf-
velgju. Hinar þrálátu spurningar
barnanna á kvöldin, þegar þau eiga
að fara að sofa, verður að afgreiða
með einu svari: A morgun skal ég
svara öllum spurningum þínum. Vin-
gjarnleg, en einbeitt framkoma for-
eldranna slær venjulega öll vopn úr
höndum þessara litlu uppreisnar-
manna. Aldrei skyldi út á þá braut
gengið að kaupa börnin til hlýðni
með hinum og öðrum fríðindum, það
getur dugað í bili, en þegar stundir
líða leiðir sú verzlun út í fullkomnar
ógöngur, loks þrjóta öll ráð, og
stjórnarbylting verður á heimilinu,
barnið verður þar bæði bóndinn og
húsfreyjan.
Hitt er svo annað mál, að vilji for-
eldranna einn má ekki alltaf ráða,
hvorki í þessum efnum eða öðrum,
að því verður að keppa, að flytja
ábyrgðina smátt og smátt yfir á herð-
ar barnsins, eftir því sem það eldist,
kenna því smátt og smátt að bera
sjálft ábyrgð á lífsvenjum sínum,
bæði háttatíma og öðru, annars er
hætt við að hált verði á svelli ungl-
ingsáranna ef ekki hefir verið lögð
stund á viljauppeldi bamsins og
ræktun ábyrgðartilfinningar.
Veðurglöggir menn telja kvöld-
roðann boða gott veður næsta dag.
Ekki veit ég hvort þarna ríkja ein-
hver lögmál úti í himingeimnum, en
niðri á jörð vorri, í okkar hversdags-
lega óbrotna lífi, ríkir vissulega það
lögmál, að dagurinn í dag skapar að
miklu leyti daginn á morgun, og ef
til vill kemur þetta lögmál hvergi
greinilegar fram en í uppeldi æsk-
unnar. Hvert misstigið spor hefnir
sín á morgun, eða að ári, hvert
drengilegt átak, hver markviss athöfn
greiðir veginn, léttir störf morgun-
dagsins, og jafnvel á þessari rótlausu,
trúlausu öld get ég ekki hugsað mér
annað en að enn sitji þúsundir
mæðra við vöggu barna sinna, búi
þau undir hinn komandi dag, marki
krossinn helga bæði „undir og ofan
á“. A meðan svo er, á meðan mæð-
urnar eru framverðir í uppeldismál-
um vorum erum við, þrátt fyrir allt,
á réttri leið.
Hagskýrslur frá Svíþjóð sýna, að af 8700
bömum, sem barnaverndamefndir þurftu að
ráðstafa, voru 1800, eða 20,5% á vegum
nefndanna vegna áfengisnautnar foreldra
eða forráðamanna. Þetta var á árunum
1912—1917. Sömu skýrslur sýna, að 21,3%
af bömum þeim, er voru á hælum fyrir
vandræðabörn á sama tíma vom þar vegna
áfengisnautnar foreldra sinna.