Heimili og skóli - 01.06.1942, Side 24

Heimili og skóli - 01.06.1942, Side 24
38 HEIMILI OG SKÓLI Árni M. Rögnvaldsson kennari: Heimanám Undirbúningskennsla barna í heimahúsum hefir því miður farið mikið þverrandi hin síðari ár. Þó að sumstaðar liggi til þess eðlilegar ástæður, er þó víða um að kenna áhugaleysi og skorti á hirðusemi um byrjunarnám barna. Með ári hverju verður tala þeirra heimila hærri, sem leggja að miklu leyti niður hið þjóð- lega og þýðingarmikla nauðsynja- starf, að búa börnin sem bezt með fræðslu og tilsögn undir framtíðar- starf sitt. Afleiðingin verður sú, að börnin líða við það fyrr eða síðar, og heimilin glata smám saman þeim menningararfi, sem þau hafa hlotið og eiga að láta yngri kynslóðinni í té- Kennslan í föðurhúsum hefir margoft reynst hinn „holli heima- fengni baggi, sem bezt hefir geymzt og dugað í baráttustarfi fulltíða mannsins. Það er því illa farið, ef heimilin vanrækja þann veigamikla þátt uppeldisins, og þarf því að gera allt sem unnt er til þess að treysta og bæta aðstöðu heimilanna í kennslu- starfi þeirra við undirbúningsnám barna. Sérstaklega er þörf á því, að gefa leiðbeiningar um helztu við- fangsefni byrjunarkennslu í lestri, reikningi, skrift, teikningu o. fl. Það er sú undirstaða, er þungi framhalds- námsins hvílir á og þarf hún því að vera sterk og rétt byggð. Það er ekki sama, hvernig þessari kennslu er hag- MÓÐURMÁLIÐ smábarna að, eða hvaða aðferðir eru notaðar. Það er áríðandi að það sé í samræmi við síðara nám barnsins og starf og kennslu skólanna. Eg ætla því að taka þetta til frekari athugunar, ef það gæti orðið einhverjum til hvatn- ingar og leiðbeiningar. Lesturinn er sú námsgrein, sem skipað hefir öndvegissessinn. Flestar aðrar námsgreinar byggjast á hon- um. Því er eðlilegt, að höfuðáherzlan sé lögð á kunnáttu í lestri, enda hefir svo verið frá því fyrsta, og svo er enn. Ymsar aðferðir hafa verið notað- ar við byrjunarkennslu í lestri, þó að stöfunaraðferðin hafi verið mest not- uð hér á landi og víða erlendis. Hljóða aðferðin hefir þó víða reynst betur, en er minna þekkt hér, og á vafalaust eftir að ryðja sér til rúms. Það er að vísu vandameira að kenna með henni, en gefur því betri árang- ur, ef rétt er að farið. Aftur á móti hefir setninga- eða orðaðferðin mjög lítið verið notuð á íslandi. Börnin læra þá orð og setningar, án þess að þekkja frumparta málsins — stafina, eða kunna að kveða að þeim. Ýmsir álíta, að þessi aðferð hljóti að vera börnum mjög erfið, en reynslan leiðir í ljós hið gagnstæða. Sálarrannsóknir sýna.að börnum er eðlilegra aðskynja í heildarmyndum en sundurliðað. Börnin læra málið, án þess að vita, að flest orð og setningar eru byggð

x

Heimili og skóli

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.