Heimili og skóli - 01.06.1942, Side 29
HEIMILI OG SKÓLI
43
um. Sá kjami er það sameinandi og
stjórnandi aflið — heilimagnið. Get-
um við hugsað okkur, að sálarlíf
mannsins sé undantekning, að það
þurfi ekki einnig sinn kjarna, sitt
heilimagn? Ekkert stundlegt og for-
gengilegt, hvorki matur, metorð, auð-
ur, nautnir, ekki einu sinni áhuga-
málin, sem takmörkuð eru og tíma-
bundin, geta verið mannssálinni slík-
ur skipuleggjari. Vitsmunalíf og sál-
arlíf mannsins tilheyrir hinu eilífa og
óforgengilega. Þess vegna getur ekk-
ert fullnægt mannssálinni, ekkert
verið henni nægilega góður skipu-
leggjari, eða heilimagn, nema hið ei-
lífa og óforgengilega, það er Guð og
trúin á Guð og eilífa lífið. Þetta er
afarmikilvægt, já, öllu mikilvægara,
þótt flaustursleg hugsun höndli það
ekki.
Sálarlíf einstaklingsins verður að
eiga sína sól, er haldi öllum þáttum
sálarkraftanna í jafnvægi og fögru
samræmi á braut sinni. Þannig, að
hinir mismunandi kraftar sálarlífsins
snúist um þessa meginhugsun manns-
ins — þessa sól lífs hans, eins og
reikistjörnurnar kringum sólina. Slíkt
heilimagn er hið eina, sem getur
skipulagt sálarlíf mannsins þannig,
að hann sé heill maður, en ekki allur
í molum, að hann sé hamingjusamur
og sæll, sterkur og öruggur, en ekki
ófarsæll og sálarsjúkur.
Jafnvel í hinum þjáðasta og hrör-
legasta líkama, þótt hlaðinn sé kaun-
um og sárum, getur ljómað engilfög-
ur, sterk og fleyg sál, sem numið hef-
ir lífsins æðstu list og segir því:
„Kóng minn, Jesús, ég kalla þig“. Sú
sál er ekki í molum, sem lýtur stjórn
Krists. Hann gerir sálir manna heilar.
Sé hann konungur hjartans, þá er þar
hvorki uppreisn, bylting eða þrótt-
laus stjórn. Þar getur ekki ríkt ófar-
sæld og sturlun. Hann er hið undur-
samlega heilimagn sálarinnar ,þessi
me^inhugsun, sem stjórnað getur
öllu hugsanalífi mannsins svo að þar
sé fagurt samræmi og jafnvægi, en
ekki lamandi truflun, flan, æði og
óheilindi. Það er þetta, sem nútíma-
manninn vantar. Hann vill aðeins
ekki kannast við þá vöntun sína.
Hann vantar í orðsins dýpstu, víð-
tækustu og sönnustu merkingu —
frelsara, þessa sól sálarinnar. Gamla
kenningin um frelsara mannanna er
rétt, ef menn nenna að skilja hana.
Hver einasta mannssál þarf sinn
skipuleggjara. Aðeins Guð getur ver-
ið henni þetta, og þá gera menn Krist
að konungi hjartna sinna. Slíkir
menn eru ekki í molum, ekki á
hlaupum, ekki tímalausir, ekki ærðir
af annríki, ekki beygðir af áhyggj-
um, ekki sálarsjúkir og bölsýnir. Þeir
eiga sína sálarsól er gerir þá „styrka
í gangi“.
í heila manns, sem hefir spillt hjarta, eru
vísindin sem vopn í höndum vitfirrings.
— Rousseau.
Maður án sjálfsaga er enginn maður, hann
er aðeins dýr. — Albert Lilius.
Föðurlandið varðar miklu, að sérhvert
heimili sé djúpur heimur, og í heiðri hafður,
heimur, sem veiti meðlimum sínum óafmá-
anlegt siðmerki. — Wagrter.