Heimili og skóli - 01.06.1942, Qupperneq 30
44
HEIMILI OG SKÓLI
Gunnar Hallgrímsson tannlæknir:
Þarf ad liipða um
barnstennurnar?
Gott er a3
skola munn-
inn á eftir
máltiðum.
Flestum mun líklega finnast óþarfi,
að hirða um barnstennurnar, þar sem
vitanlegt er, að þær eru aðeins til
bráðabirgða og eiga sér tiltölulega
skamman aldur. Fram að þessu hefir
„hirðing“ þeirra nær eingöngu verið
fólgin í því að kippa þeim út, þegar
tannpínan hefir haldið innreið sína.
En þegar á bað er litið hve lengi barn-
ið verður að notast við barnstennurn-
ar eingöngu, eða því sem næst, verður
það hverjum fullljóst hve þýðingar-
mikið það er fyrir heilbrigði og vel-
líðan barnsins, að ténnur þess séu í
sem beztu lagi. Barnið tekur venju-
lega fyrstu tennurnar, þegar það er
6—8 mánaða, og tanntökunni er lok-
ið þegar það er rúmlega tveggja ára.
Síðustu barnstennurnar fellir barnið
12—13 ára. Fyrstu fullorðinstenn-
urnar koma á sjöunda árinu.
Af þessu má sjá að barnstennurnar
eru í notkun um tíu ár, og af þeim
tíma verður barnið að notast við þær
eingöngu í 4—5 ár. Það verður því
auðsætt, að barninu er nauðsynlegt
að tennurnar séu heilbrigðar, því að
öðrum kosti getur það ekki unnið sér
til matar. Einmitt á þessum árum er
barnið í mjög hröðum vexti, og líðan
þess og heilbrigði á þessum tíma get-
ur haft mikla þýðingu,bæði fyrir and-
legt og líkamlegt atgervi þess síðar
meir. Allir eru sammála um, að barnið
þurfi að fá heilnæma fæðu á upp-
vaxtarárunum, en til hvers er það, ef
það ekki getur hagnýtt sér fæðuna
vegna skemmdra tanna eða tannleys-