Heimili og skóli - 01.06.1942, Side 33

Heimili og skóli - 01.06.1942, Side 33
HEIMILI OG SKÓLI 47 sem böm koma ekki í skóla fyrr en 10 ára gömul, og eru ekki í skóla nema 8—16 vik- ur árlega, eða skemur, verða þau að vera læs. Annars fer allt skólastarfið í mola, ó- læsu börnin verða ekki læs, en svo mikill tími fer til þess að reyna að þoka þeim áfram, að kennarinn getur ekki sinnt hin- um læsu svo sem þau eiga heimtingu á, og allir verða óánægðir. Hin ólæsu böm verða óhjákvæmilega aftur úr. Og það, að verða af þessum sökum aftur úr, getur haft óaf- máanlega skaðleg áhrif á alla framtíð þeirra, með því að hætta er á, að þau missi traust á sér, verði þunglynd og önug, og þjáist af minnimáttarkennd, sem kann að verða háskasamleg þroska þeirra og allri framtíð. Foreldrar ættu að minnast þess, að þeir gera varla barni sínu meiri greiða, en að gera það vel læst áður en það nær 10 ára aldri. Og kennarar og skólanefndir þurfa að vera vel á verði um þessi mál. Sn. S. Fréttir frá barnaskólanum á Eskifirði. Skólinn hefir starfað að undanfömu í 10 mánuði, en nú á þessu ári var starfstími hans styttur um 1 mánuð. 112 börn stund- uðu nám í skólanum síðastliðið starfsár, þar af útskrifuðust 15 nú í vor. Hver kennsludagur hófst með því, að kennarar og þau böm, sem dvöldu í skól- anum fyrir hádegi, komu saman í einni kennslustofunni. Lásu þá börnin upp valin kvæði og sungu sálma og ljóð. Síðasta kennsludag fyrir jól komu böm og kennarar saman í leikfimisal skólans. Var þá lesið upp, sagðar sögur og sungið. Jóla- blær hvíldi yfir samkomunni. Síðasta kennsludag fyrir próf fór fram leikfimisýning fyrir foreldra. A sumardaginn fyrsta fóru börnin í skrúð- göngu um kauptúnið, undir bekkjarfánum og íslenzkum fánum. Staðnæmzt var við barnaskólann. Þar flutti skólastjóri ávarp til foreldra og annarra viðstaddra. 30. apríl fóru fram skólalausnir. Þá fór einnig fram sýning á skólavinnu barnanna. Margir foreldrar mættu bæði við skólaslit og á sýningunni. A sýningunni var meðal annars: Vinnubækur í ýmsum námsgreinum, teikningar, skrift og handavinna. 33 stúlkur nutu handavinnukennslu og sýndu 128 muni, þar af um helminginn stór stykki og vönduð. Handavinnukennari er frk. Einarína Guð- mundsdóttir. Þrjár Rauða kross deildir störfuðu í skól- anum: Æskudáð, Æskuvon og Æskugleði (6., 5. og 4. b.). Elzta deildin hélt fundi vikulega. Voru þá gefnar skýrslur um störf deildarinnar og athugað hvaða nemendur hefðu ekki haldið settar reglur, sem eru all- nákvæmar. Þá starfaði sérstök málvöndun- amefnd, sem gaf skýrslu á hverjum fundi. Vandlega var þess gætt, að fundirnir færu formlega og skipulega fram. Það skal tekið fram, að reynt er að hafa sem mestan hátíða- og alvörublæ yfir skóla- setningu og skólauppsögn. Hér á Eskifirði ber nokkuð á hljóðvillu meðal barna, eins og víðar á landinu. Höf- um við tekið upp þá reglu við einkunnagjöf hljóðvilltra barna, að dæma ekki eftir því, hve margar hljóðvillur koma fyrir í stílnum, heldur draga 1—2 heila frá réttritunareink- unn barnsins (sem fæst án tillits til hljóðv.) eftir því hve hljóðvilla þess er yfirgrips- mikil. Börnum í elzta bekk skólans eru jafnan gefnar einkunnir fyrir málfræðikunnáttu og vinnubækur, enda þótt ekki beri skylda til þess, og þær séu ekki reiknaðar með til aðaleinkunnar. Skúli Þorsteinsson. Til fyrirmyndar. Tveir heimavistarskólar eru nú að rísa norðanlands, og eru báðir hrepparnir fá- mennir, sem að þeim standa, en þar eru á- hugamenn að verki. Annar skólinn er við Barðslaug í Haga- neshreppi í Fljótum, og hefir hann fengið Siglufjörð til að leggja í bygginguna með sér gegn því, að þar verði dvalarheimili fyrir siglfirzk börn að sumrin. Er það vel og viturlega ráðið úr því nágrannahrepparnir vildu ekki vera með. Hinn skólinn er í Arskógshreppi við Eyjafjörð, og byggir hreppurinn þar einn með styrk úr ríkissjóði, samkvæmt lögum,

x

Heimili og skóli

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.