Heimili og skóli - 01.06.1942, Qupperneq 34
48
HEIMILI OG SKÓLI
og úr menningarsjóði Kaupfélags Eyfirð-
inga. Er það fyrsti hreppurinn í Eyjafjarðar-
sýslu, sem notfærir sér hina rausnarlegu
gjöf K.E.A. á 50 ára afmæli þess, er það gaf
50 þúsund krónur til byggingar heimavist-
arskóla í Eyjafjarðarsýslu.
Hverjir koma næst? Sn. S.
,JVIenntamál.“
Fyrir nokkru er komið út október—des-
emberhefti Menntamála. Hefti þetta er
mjög myndarlegt að efni, prýðilegt að frá-
gangi og prýtt allmörgum myndum.
Helztu greinar eru: Minningargrein um
Benedikt Björnsson skólastjóra á Húsavík,
eftir Egil Þorláksson kennara. Barnaleik-
völlurinn á Akureyri, Kennslueftirlitið, eftir
Jakob Kristinsson fræðslumálastjóra, Gagn-
fræðapróf, eftir Steinþór Guðmundsson
kennara, Tveir dagar í Reykjavík, eftir Sig-
urð Helgason kennara, Minning Eiríks
Magnússonar, eftir Jón Sigurðsson skóla-
stjóra, Skólarnir og skátafélagsskapurinn,
eftir frú Aðalbjörgu Sigurðardóttur, og
margar smærri greinar, fréttir og bóka-
fregnir.
Þeir, sem hefðu huga á að gjörast áskrif-
endur að ritinu, sendi pöntun í pósthólf 616,
Reykjavík.
Hugsjón mannlífsins er sú, að breyta líf-
inu í eitthvað, sem er ágætara en það sjálft
— Wagner.
Meginlestir okkar mannanna eru þrír, og
eru þessir:
Leti — skortur á djörfung og sjálfsstjóm.
Hugsunarleysi — skortur á sannleika.
Sérplæéni — skortur á kærleika. —
Ernest Wood.
Það er eftirtakanlegt, hve margir heims-
ins mestu og beztu manna hafa átt mikið
mæðrum sínum að þakka. Hvað heimurinn,
mannkynið yfirhöfuð að tala, á góðum
mæðrum að þakka, getur enginn reiknað
nema guð. — Séra Magnús Helgason.
HEIMILI OG SKÓLI
— Tímarit um uppeldismál. —
Utgefandi Kennarafélag Eyjafjarðar.
Ritið kemur út í 6 heftum á ári,
minnst 16 síður hvert hefti, og kostar
árg. kr. 5,00, er greiðist fyrir 1. júlí.
Utgáfustjórn:
Snorri Sigfússon, skólastjóri.
Kristján Sigurðsson, kennari.
Hannes J. Magnússon, kennari.
Afgreiðslu og innheimtu annast:
Eiríkur Sigurðsson kennari, Hrafna-
gilsstræti 12. Akureyri. Sími 262.
Ritstjóri:
Hannes J. Magnússon, Páls Briems
götu 20, Akureyri. Sími 174.
Prentverk Odds Björnssonar.
Andlegt frelsi vinnst aðeins fyrir harða
baráttu og vakandi umhyggju, eins og póli-
tískt frelsi og allt, sem nokkurs virði er í
þessum heimi. Frelsið er sigurlaun þeirra,
sem eru hæfir, sterkir og þrautseigir. Það er
enginn frjáls, sem ekki hefir unnið til þess.
— Jules Payot.
Það dugar trauðla nokkur til að uppala
aðra, nema hann hafi kostað kapps um að
uppala sjálfan sig og haldi sífellt áfram að
gjöra það. — Sr. Magnús Helgason.
Matur og fé er góð guðsblessun til að
lifa af, en að kafna í því, kyrkjast út af, er
víst ekki betri dauðdagi en hver annar.
Jafnvel veraldargengið verður valt, ef and-
lega lífið er vanrækt. — Sr. M. Helgason.
Meir en nokkurn málara, meir en nokk-
urn myndasmið, meir en nokkurn listamann
met ég þann, sem bætir og lagar barnssál;
listamaður lætur eftir sig dauða mynd, en
hinn lifandi listaverk, sem bæði gleður guð
og menn. — Krysostomus.