Heimili og skóli - 01.08.1944, Side 5
HEIMILI OG SKÓLI
51
ár, og var Snorri oftast einn við skól-
ann með 30—40 börn. En auk skóla-
starfsins hlóðust á hann ýmis önnur
störf, var hann t. d. í hreppsnefnd í
14 ár og þá lengst af oddviti. For-
maður sóknarnefndar var hann öll
árin, er hann dvaldi á Flateyri, og var
hann allan þann tíma söngstjóri jafn-
framt. Hann vann þá meðal annars
að því að koma upp grafreit í þorp-
inu. Lestrarfélag stofnaði hann, var
einn af stofnendum Sparisjóðs Ön-
firðinga og tók mikinn þátt í félags-
lífi þorpsins, einkum stúkunnar
Straumhvarfa. Þótt Snorri hefði mik-
ið að starfa á Flateyri, mun hann
hafa unað sér þar vel, og segist hafa
saknað Flateyringa, er hann fór það-
an, mun það mála sannast, að hvor-
ugum hafi þótt skilnaðurinn góður.
Haustið 1930 fluttist hann svo til
Akureyrar og gjörðist skólastjóri
barnaskólans þar og hefur verið það
síðan, að öðru leyti en því, að hann
var námsstjóri í Norðlendingafjórð-
ungi veturna 1941—1943, setti þá
mann í staðinn fyrir sig, en hélt skóla-
stjórastöðunni.
Eftir að hann lauk námi hefur
hann farið þrisvar sinnum utan til að
kynnast skólamálum nágrannaland-
anna og ætíð komið heim fullur af
nýjum áhuga og eldi. Þámágetaþess,
að hann var formaður milliþinga-
nefndar þeirrar, sem undirbjó nú-
gildandi fræðslulög og vann þar mik-
ið verk, þótt tillögur hans og sam-
nefndarmanna hans næðu ekki allar
fram að ganga.
Þetta er nú í stuttu máli ramminn
utan um 60 ára ævi Snorra Sigfús-
sonar, og mætti því ef til vill láta hér
staðar numið, ég get þó ekki stillt
mig um að bæta við nokkrum orð-
um.
Eg kynntist Snorra lítið fyrr en
hann kom til Akureyrar, en við kom-
um þangað jafnt að skólanum. Ég
hafði þó áður verið með honum á
nokkrum kennaraþingum, en þar hef-
ur hann ætíð verið einn af hinum
sókndjörfustu bardagamönnum, eins
og á öðrum mannfundum, þegar góð-
ur málsstaður hefur þurft á liðs-
mönnum að halda.
Það mætti skipta þessum sextíu
ára ferli Snorra í þrjú höfuð tímabil.
Fyrsta tímabilið er vitanlega bernska
hans og æskuár, þegar hann með
fádæma dugnaði brýzt til mennta,
foreldralaus, með tvær hendur tóm-
ar, stofnar skóla, gjörist einn af frum-
herjum Ungmennafélagsskaparins,
fastnar sér konu og leggur svo út á
djúpmið manndómsáranna.
Annað tímabilið er svo skólastjóra-
tíð hans á Flateyri, þar sem hann
gjörist allt í öllu í andlegum og ver-
aldlegum málefnum þorpsins, en er
síldarmatsmaður á sumrin og aflar
sér þar svo mikils trausts, að hann er
skipaður yfirsíldarmatsmaður á
Vesturlandi, og hefur svo fram á síð-
ustu ár verið nokkurs konar ráðu-
nautur ýmsra síldarsaltenda og síld-
arútvegsnefndar.
Þriðja tímabilið er svo skólastjóra-
tíð hans á Akureyri. A því tímabili
fer hann tvisvar utan, er formaður
milliþinganefndar í skólamálum,
námsstjóri í tvö ár, formaður Kenn-
arafélags Eyjafjarðar frá stofnun þess