Heimili og skóli - 01.08.1944, Page 7
HEIMILI OG SKÓLI
53
merkjum, sem taldir hafa verið at-
hafnamenn annað hvort á hinu and-
lega eða efnislega sviði, meiri en al-
mennt gjörist. En það er ekki of mik-
ið sagt, þótt fullyrt sé, að margur
beri nú þann kross, sem minni skerf
hefur lagt fram til að manna þjóð
sína, en Snorri Sigfússon, og minni
áhuga og trúmennsku hafi sýnt í
starfi sínu en hann, að öllum þeim
mörgu og góðu mönnum ólöstuðum
— en nóg um það.
Það er hægt að mæla í dagsláttum
túnrækt bóndans, það er hægt að
meta til fjár aflann, sem „aflaklærn-
ar“ draga á land og auðga með því
þjóðarbúið, það er hægt að meta til
fjár mannvirkin, sem athafnamenn-
irnir láta gjöra, það er hægt að telja
skipin, sem þeir láta byggja o. s. frv.,
en starf skólamannsins verður ekki
metið á neinn slíkan mælikvarða,
þess vegna er jafnan hljótt um störf
hans. En hvað sem því líður, má full-
yrða, að Snorri Sigfússon lætur eftir
sig ýmis spor í íslenzkum skóla- og
uppeldismálum, þegar hann að lok-
um dregur skip sitt í naust að lokn-
um löngum og farsælum róðri.
Sjálfur telur hann sig hamingju-
mann, ég tel hann það líka. Hann
hefur átt góða eiginkonu. Hann hefur
haft mikið barnalán og á nú sex
mannvænleg börn. Hann er með af-
brigðum vinsæll af öllum, sem til
hans þekkja, og hann hefur þegar
skilað miklu og farsælu dagsverki,
sem hann á vafalaust eftir að bæta
miklu við enn .Allt eru þetta góðar
gjafir, sem oft eru í fylgd með böm-
um hamingjunnar.
Ég gat þess hér. að framan, að
Snorri hefði verið einn af þeim, sem
ekki gjörði sig ánægðan með að láta
gömlu söguna endurtaka sig. I því
sambandi skal þess þó getið, að hug-
ur hans átti djúpar rætur í íslenzkri
fortíð og sögu. Hann er þjóðrækinn
og trúrækinn í senn. Skólastarf sitt
hefur hann viljað byggja á kristileg-.
um og þjóðlegum grundvelli, og úr
þeim tveim miklu elfum, sem veitt
hafa frjódögg yfir íslenzka menningu
um margar aldir, vildi hann mega
ausa hollum og siðbætandi áhrifum
inn í skólastarfið.
Snorri hefur einhvern tíma sagt,
að það bezta, sem hann hafi hlotið í
vöggugjöf, hafi verið glaðlyndið,
söngröddin og hjartahlýja móður
sinnar. Þetta eru góðar vöggugjafir,
og Snorri hefur ekki búið einn að
þeim, heldur miðlað samferðamönn-
um óspart af þeim öllum.
Eg óska svo að lokum Snorra Sig-
fússyni allra heilla á þessum vega-
mótum ævinnar, þakka honum fyrir
samvinnuna og óska honum allrar
blessunar á fjórða áfanganum, sem
vel mætti telja, að væri nú hafinn.
Eg flyt þær árnaðaróskir í nafni allra
samkennara hans við barnaskóla Ak-
ureyrar, og ég flyt þær einnig í nafni
Kennarafélags Eyjafjarðar, sem gef-
ur rit þetta út. Þökk fyrir langt og
dáðríkt starf.
20. ágúst 1944.
Hannes J. Magnússon.
Segið börnum yðar aldrei ósatt, ef þið
viljið að þau beri virðingu fyrir sannleikan-
um, þegar þau stækka.