Heimili og skóli - 01.08.1946, Síða 4

Heimili og skóli - 01.08.1946, Síða 4
74 HEIMILI OG SKÓLI Þá hafa kvikmyndirnar verið tekn- ar í þjónustu áróðursins í mörgum löndum. Þegar berja þarf inn í fólkið einhverjar vissar stjórnmálaskoðanir, er gripið til kvikmyndanna. Allir kannast við, hvernig þetta var í Þýzka- landi fyrir styrjöldina. Þá munum við einnig, hvernig ófriðarþjóðirnar reyndu að nota kvikmyndirnar til áróðurs í styrjöld þeirri, sem nú er ný- lega lokið. Mikið af þessum myndum hefur verið sýnt hér á landi á ófriðar- árunum. Af þessu má ljóst vera, að kvik- myndirnar, eins og þær eru sýndar hér í kvikmyndahúsum, eru mjög misjafn- ar, sumar góðar, aðrar lélegar. En sam- eiginlegt fyrir flestar þessar myndir er það, að þær eru ætlaðar fullorðnu fólki, en eigi börnum. Þær eru miðað- ar við lífsreynslu og skilning hinna fullorðnu, en ekki barna. Af þessari ástæðu er það eigi aðeins varhugavert, heldur oft á tíðurn skað- legt, að börn sæki allar kvikmyndir, sem sýndar eru. Hraðinn, eftirvæntingin og óróinn, sem þær skapa, valda oft hjá börnum taugaæsingu, sem er þeim skaðleg. Þá er siðferðilegum hugmyndum oft snú- íð við þannig, að hinum hrottalega skálki gengur allt til láns, og virðist vera fyrirmynd til eftirbreytni. Eftir- líkingarhneigð barnsins fær þar líka oft óheppileg verkefni, sem betra væri að vera laus við. Ég get ekki stillt mig um að skjóta því hér inn, að nýlega hefur kornið fram getgáta í einu af dagblöðum okk- ar um það, að hin gífurlega áfengis- hneigð þjóðarinnar hin síðari ár eigi •orsök sína í hraðanum og óróanum, sem einkenni þessa tíma. Taugakerf- inu sé ofboðið, áhrifin komi fram í taugaæsingu, sem meðal annars sé ein af helztu orsökunum til hinnar gífur- legu áfengishneigðar. Sé þetta rétt, eiga kvikmyndir þær, sem sýndar hafa verið æskunni hér undanfarin ár, ef- laust sinn þátt. Mér er sagt, að hjá frændþjóðum okkar á Norðurlöndum þekkist það ekki, að börn sæki almennar kvik- myndasýningar. Þau sæki aðeins barnasýningar, sem þeim eru sérstak- lega ætlaðar. Þessu er ekki þannig var- ið liér, þar sem börn sækja allar kvik- myndasýningar, ef þau aðeins fá inn- göngu, jafnt að kvöldi sem á degi. í þessu efni eigum við því talsvert ólært. Börn ættu ekki að sækja aðrar kvik- myndasýningar en þær, sem þeim eru sérstaklega ætlaðar síðdegis á sunnu- dögum. Mjög er misjafnt, hve góða reglu heimili hafa um þessa hluti. Sum heimili hafa í þessu efni fastar reglur, en önnur láta geðþótta barnanna ráða. Ég átti nýlega tal um þetta við konu eina. Hún sagði: ,,Börnin mín fara aldrei í kvikmyndahús á kvöldin. Þau fá að fara á barnasýningu annan hvorn sunnudag, og fara aldrei fram á annað.“ — Ég hygg að þetta sé til fyrir- myndar. Bezt er fyrir barnið, að um þetta sé mynduð einhver föst regla, og breaða svo ekki út af henni. ° • En er þá börnum ekki bannað að sjá þær myndir, sem álitnar eru skað- legar fyrir þau? Jú, að vísu. En frarn- kvæmdin á þessum kvikmyndabönn- um er svo bágborin, sennilega um land allt, að ástæða er til að fara um hana nokkrum orðum. Það er þýðing-

x

Heimili og skóli

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.