Heimili og skóli - 01.08.1946, Síða 15
HEIMILI OG SKÖLI
85
heimanámi barnanna, sjá um að ekk-
ert sé vanrækt og veita aðstoð, ef með
þarf. Og í öðru lagi með því að skapa
þeim skilyrði, svo sem mögulegt er, til
að þau hafi næði til að stunda nám
sitt. En þar hafa heimilin næsta mis-
jafna aðstöðu, og allt of mörg mjög
slæma. Þar sem húsakynni eru þröng,
en ef til vill margt í heimili, er erfitt,
eða nálega ómögulegt, að veita börn-
unum þessi skilyrði, enda segir slíkt
oftast til sín, þegar í skólana kemur.
Um hitt, að fylgjast með heimanámi
barnanna, má svipað segja. Þessa erfið-
Ieika skilja kennarar vel, en hins er
heldur ekki að dyljast, að ekki þarf æ-
tíð þessa örðugleika til, að börn komi
iítt undirbúin í skólana.
Þarna kemur einnig fleira til greina,
og vil ég þá sérstaklega vekja athygli á
einum friðarspilli á heimilunum, en
það ér útvarpið. Jafnvel svo góða hluti
má misnota. Og ég er ekki viss um, að
allir skipuleggi útvarpsnotkun sína,
eins og æskilegt væri, og þá sérstaklega
með tilliti til barnanna, sem þurfa að
stunda rneira og minna nám. Það væri
ekki sanngjarnt að krefjast þess, að
þessu góða menningartæki væri lokað
að staðaldri, þótt eitthvað væri af börn-
um á heimilinu, sem þyrftu að læra
sín fræði. En hitt ættu allir foreldrar
að athuga í fullri alvöru, hvort ekki
væri rétt að gera það að fastri venju
að loka útvarpinu, þegar um er að
ræða útvarpsefni, sem enginn liefur á-
huga fyrir og enginn hlustar á í raun
og veru. Og það hefur þráfaldlega
komið fyrir, að börn, sem komið hafa
illa undirbúin í skólann, hafa meðal
annars borið því við, að þau hafi ekki
getiað lært vegna útvarpsins. Þar sem
börnin hafa sérstök herbergi til að
vinna í, kemur þetta ekki að sök, en
því miður munu þau þægindi ekki
vera svo algeng sem skyldi.
Á síðari árum hafa uppeldisfræð-
ingar meðal annars beint rannsóknum
sínum að því, hvaða áhrif umhverfið,
svo sem húsakynni, tala systkina, heim-
ilislíf o. fl., hefði á námsafköst barna,
og hefur þá komið í ljós, að námsaf-
köst hafa verið að mun verri hjá þeim
börnurn, sem ólust upp í þröngum og
lélegum húsakynnum. Ætti sú stað-
reynd að vera enn ein hvöt til að kapp
yrði lagt á, að öll landsins börn fengju
að alast upp í viðunandi húsakynn-
um, sem ekki draga úr þroska þeirra
og andlegri og líkamlegri heilbrigði.
Ég veit ekki nema að slíkt ætti jafn-
vel að koma á undan skólunum. Og
svo að endingu þetta: Foreldrar geta
veitt skólunum ómetanlega aðstoð með
því að fylgjast með námi barna sinna
heima, örfa þau og hvetja til að gera
skyldu sína, og þá ekki síður með hinu,
að reyna að hafa svo mikla kyrrð og ró
á heimilinu, að barnið hafi gott næði
til að stunda nám sitt.
Barnaverndarnefnd Akureyrar
hefur ákveðið í samráði við lögreglustjóra
bæjarins, að börn og unglingar á Akureyri
frá 12—17 ára að aldri fái aldursskírteini í
haust. Ætlast er til, að handhafar skírtein-
anna leggi sjálfir til myndir á þau. Verða
skírteinin sennilega afhent í október næst-
komandi. Er þetta gert til að auðvelda störf
umsjónarmanna kvikmyndahúsa og annarra
stofnana, þar sem aðgangur er bundinn við
vissan aldur, samanber grein á öðrum stað í
þessu hefti. Er þess vænzt, að foreldrar taki
þessu með skilningi og velvild.