Heimili og skóli - 01.08.1946, Qupperneq 6

Heimili og skóli - 01.08.1946, Qupperneq 6
76 HEIMILI OG SKÖLI HANNES J. MAGNÚSSON: Nokkur orð um samvinnu heimila og skóla (Niðurlag). Að gera skyldu sína. í stórum skólum með fjölmennum bekkjum er kennurum mikill vandi á höndum með að sjá um, að allir nem- endur geri skyldu sína, og það er ætl- un mín, að enginn skóli gefi því gæt- ur sem skyldi, hvílíkt grundyallar- atriði það er í öllu uppeldinu, 'bæði í heimilum osr skólum. Og í skólastarfi er það hættulegra en flest annað, að nemendur vanræki skyldustörf sín, einmitt þess vegna er svo áríðandi, að þeim sé ekki gefið þar undir fótinn með því að gera cf miklar kröfitr til þeirra. Skyldurækni og reglusemi eru dyggðir, sem skólarnir hafa óvenjulega góð skilyrði til að rækta, og þar ber þeim að leita aðstoðar heimilanna. Foreldrar mega ekki ganga þess duld- ir, að barn þeirra geri ekki skyldu sína í skólanum eða heima. I3ess vegna má enginn kennari hika við að biðja um aðstoð foreldranna, þegar slíkt kemur fyrir. Þessar dyggðir eru svo mikils virði, að það má með miklum rétti telja þær hornsteina hins siðræna upp- eldis, og því meira virði en flest annað skólanám. Það ríður á miklu, að þarna sé lögð góð undirstaða í hyrjun .Það á að gera bcirnunum það skiljanlegt þegar á hin- um fyrstu dögum skólaverunnar, að reglusemi og skyldurækni séu eins sjálfsagðir hlutir, eins og að korna hreinn í skólann, eða yfirleitt eins sjálfsagt eins og að koma í skólann. Það er líka vilji langflestra foreldra, að þessa sé krafizt af hörnum þeirra, þótt þeir sumir hverjir veiti þar minni aðstoð en skyldi, og 99% allra for- eidra vilja heldur traustan og jafnvel strangan aga í skólunum en lausatök og lélega stjórn. En þá hvílir jafn- framt sú skylda á þeim að hafa búið þannig í hendur kennaranna, að hörn þeirra kunni að hlýða og lúta aga. Geri báðir aðilar, foreldrar og kenn- arar, þarna skyldu sína, er fenginn grundvöllur undir uppalandi starf í skólunum. En grundvallarskilyrði fyr- ir uppalandi skólastarfi er góð stjórn. Hitt er svo annað mál, að stjórnsemin og aginn þurfa ekki að koma frarn í hörku og óbilgirni, og eiga ekki að gera það. Og sífellt nöldur og að- finnslur er oft upphaf agaleysis. Þó að það geti verið mjög varhuga- vert fyrir sjálfstæði kennarans að fara mjög í smiðju til annarra, þegar hann á við einhverja erfiðleika að stríða í hekk sínum, er það þó ætlun mín, að kennarar hafi of lítið samband við for- eldranna um þá hluti og dragi það oft of lengi að láta þá vita, þegar eitthvað ber út af með börn þeirra. T. d. áber- andi vanræksla við námið, slæm hegð- un, eða eitthvað annað- Þeir kveinka

x

Heimili og skóli

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.