Heimili og skóli - 01.08.1946, Blaðsíða 9

Heimili og skóli - 01.08.1946, Blaðsíða 9
11KIMILI OG SKÖLI 79 HANNES J. MAGNÚSSON: Frú Anna Hlöðversdóttir kennslukona sjötug Hinn 29. september næstkomandi verður Anna Hlöðversdóttir, kennslu- kona að Reyðará í Lóni, sjötug. Hún er fædd að Vallanesi í Suður-Múla- sýslu 29. sept. árið 1876. Foreldrar hennar voru Lúðvig Schou verzlunar- stjóri í Húsavík og síðar sölumaður á verzlunarskipi Gránufélagsins, og Elín Einarsdóttir prests Hjörleifssonar í Vallanesi. Þegar Anna var átta ára, missti hún móður sína. Þá bjuggu foreldrar hennar í Vallaneshjáleigu, en vegna þess að búsforráð höfðu jafnan hvílt á Elínu móður Önnu, hætti faðir henn- ar búskap með öllu við lát konu sinn- ar. Var þá Anna tekin í fóstur af séra Jóni Jónssyni prófasti í Bjarnarnesi, síðar á Stafafelli í Lóni og konu hans Margréti Sigurðardóttur prófasts Gunnarssonar að Hallormsstað. Þar ólst Anna upp, og mun það hafa orðið henni til mikillar giftu að alast upp á slíku menningarheimili. Þegar Anna var 18 ára að aldri, sett- ist hún í kvennaskólann að Ytri-Ey í Húnavatnssýslu, er síðar var fluttur til Blönduóss, og stundaði þar nám í tvo vetur. En sumarið eftir hinn fyrrí skólavetur dvaldi hún í Grímstungu í Vatnsdal hjá Birni Sigfússyni alþing- ismanni og hinni gáfuðu og þjóð- kunnu konu hans, Ingunni Jónsdótt- dóttur, systur séra Jóns á Stafafelli. Haustið 1898 gekk hún að eiga Sigurð Jónsson búfræðing, sem þá var ráðsmaður hjá séra Jóni fóstra henn- ar, og tveim árum síðar reistu þau bú á Reyðará í Lóni. Þar bjuggu þau til ársins 1917, en þá missti Anna mann sinn frá mörgum ungum börnum, og má telja það vel af sér vikið að koma þeim öllum til manns ein síns liðs. En skömmu síðar gat Geir, elzti sonur hennar, tekið við búsforráðum með henni. Þeim hjónum varð sex sona auðið. Einn þeirra, Þórhallur, andaðist að Vífilsstaðahæli árið 1907, hin- ir eru: Geir, bóndi að Reyð- ará, Stefán, skólastjóri í Reyk- holti í Biskupstungum, Hlöðver, skólastjóri í Siglufirði, Ásmundur, al- þingismaður og kennari í Hornafirði og Hróðmar, kennari í Hornafirði. —

x

Heimili og skóli

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.