Heimili og skóli - 01.10.1947, Blaðsíða 6

Heimili og skóli - 01.10.1947, Blaðsíða 6
96 HEIMILI OG SKÓLI DR. MATTHÍAS JÓNASSON: Samvinnumöguleikar heimilis og skóla (Niðurlag). IJeir erfiðleikar á samvinnu heimilis og skóla, sem nú voru nefndir, eru háðir afstöðu eða skoðunum einstakra manna, og þeim mun þoka af leið með aukinni menntun og vaxandi gagn- kvæmum skilningi foreldra og kenn- ara. Dýpri andstaða milli beggja er fólgin í því, að afskipti skólans af upp- eldinu draga úr áhrifum heimilisins á barnið. Foreldrum hættir til að líta svo á, að uppeldið dragist um of úr höndum þeirra, einkum ef þeim finnst skólinn ala upp í öðru hugarfari en þau sjálf hefðu óskað. Á sama hátt get- ur kennara fundizt andi heimilisins hamla skilningi barnsins á ýmsum skoðunum, sem skólinn vill innræta því. Af þessum sökum lenda skóli og heimili oft í togstreitu um barnið. verður sú barátta hörð, ef um er að ræða viðkvæm mál frá beggja hendi. T. d. taka fæstir foreldrar því með jafnaðargeði, ef þeim finnst barnið gerast reikult í hefðgrónum trúarskoð- unum fjölskyldunnar eða hallast að annarri stefnu í félagsmálum en faðir- inn. En fræðslustarf skólans getur beinlínis vakið barnið til gagnrýni á kemur allur agi af sjálfu sér. Hitt er aftur þyngra böl en tárum taki, þegar foreldrar verða að játa það, að þeir ráði ekkert við barnið sitt, löngu áður en það er fært um að sjá um sig sjálft og bera ábyrgð á gjörðum sínum.-------- margs konar skoðanahefð. Slíkar and- stæður innan uppeldisins munu aldr- ei hverfa. Þegar mjög skerst í odda um þjóðfélagsmál, eins og nú er ástatt, hljóta þær að verða harðar. Og þó að öldurnar lægi á yfirborðinu, stöðvast aldrei hinir andhverfu straumar. Þessi togstreita er einn aflgjafinn í fram- vindu menningarinnar. Hún er að mínu viti réttmæt og vel fallin til að glæða uppeldisvitund beggja aðila. Arfgengar skoðanir verða upprenn- andi kynslóð því aðeins til heilla, að hún skilji þær í námi, reynslu og hugs- anastarfi út frá eigin sj'ónarmiði. Þannig öðlast hún sannfæringarafl til að brjóta skoðunum feðranna braut — eða berjast gegn þeim fyrir nýjum hugsjónum. Þar sem enginn skoðana- raunur er, er heldur ekkert skoðana- frelsi, en þroskamöguleikarnir veslast upp í svefndrunga vanans eða ör- magnast undir hnútasvipu skoðana- kúgunarinnar. Einmitt með því að gefa æskunni tóm til gagnrýni og íhygli, þroskast dómgreind hennar og skilningur, unz hún verður fær um að mynda sér rökstudda skoðun. Á þenn- an hátt getur ágreiningur heimilis og skóla oft orðið barninu til aukins þroska, ef skilnings og virðingar er gætt á báða bóga. Skilyrði fyrir sam- vinnu er ekki fullkomleiki beggja, heldur einlægur vilji hvors um sig að læra af hinu og verða því sem bezt samtaka.

x

Heimili og skóli

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.