Heimili og skóli - 01.10.1947, Blaðsíða 16

Heimili og skóli - 01.10.1947, Blaðsíða 16
106 HEIMILI OG SKÖLl ÓLAFUR GUNNARSSON: Skólamál Kaupmannahafnar Höfundur þessarar greinar, Ólafur Gunn- arsson frá Vík í Lóni, er ungur kennari. — Hann lauk prófi frá Kennaraskóla íslands fyrir nokkrum árum, en sigldi þá fljótlega til Danmerkur til framhaldsnáms, og er nú kennari við Katrinedalskólann í Kaupmanna- höfn. Ritstj. Heimilis og skóla hitti Ólaf að máli, er hann var á ferð hér sl. sumar og bað hann að segja lesendum ritsins eitthvað frá skólamálum í Danmörku. Hér birtist nú fyrsta grein hans. Heimilisfang Ólafs í Kaup- mannahöfn er Ferskenvej 1, Köbenhavn F. Er ég færi mér í fang að skrifa um skólamál Kaupmannahafnar, er mér innanbrjósts áþekkt ferðamanni, sem er að leggja upp í könnunarferð að vetrarlagi í tvísýnu veðri og á lítt varð- aða fjallvegi framundan. Hann veit, að einn aðalvegur liggur framundan, en auk hans eru ótal hliðargötur, bæði þröngar og bugðóttar, og eigi hann ekki að koma heim jafn fáfróður og hann lagði af stað, verður hann að skyggnast inn í hliðargöturnar. Skólakerfi Kaupmannahafnar líkist slíkum fjallvegi. Aðalvegurinn er hinn almenni barnaskóli, en fjöldi sérskóla og sérbekkja minna á bugðóttu og vandrötuðu hliðargöturnar. í hina opinberu skóla Kaupmanna- hafnar gengu árið 1943 60.000 nem- endur, aðeins 3800 gengu í einkaskóla. Af opinberu skólunum voru 4 ríkis- skólar og 70 bæjarskólar. í Kaupmannahöfn, eins og annars staðar í Danmörku, eru börn skóla- skyld frá 7—14 ára aldurs. Oft koma börn þó í skóla 6 ára, en aldrei yngri. Hinn sameiginlegi barnaskóli er að- eins 5 bekkir, börnin koma í fyrsta bekk 6 til 7 ára gömul o°r útskrifast úr 5. bekk 11 til 12 ára gömul. í þessum bekkjum var börnunum lengi vel skipt eftir kynjum, en nú er búið að afnema þá skiptingu og ganga nú drengir og stúlkur í sömu bekkina. I barnaskólanum er börnunum ekki skipt eftir hæfileikum, nema hvað hin allra tornæmustu eru setf í sérbekki og hin allra óþægustu í athugunarbekki. (Sjá síðar). I þessum 5 bekkjum er aðaláherzlan að sjálfsögðu lögð á móðurmáls- kennslu og reikning, en þar að auki læra börnin kristin fræði og leikfimi í öllum bekkjunum og í 3.-5. bekk sögu, landafræði, náttúrufræði og teiknun. Sögukennsla hefst í öðrum bekk. Upp úr 5. bekk hefst aðgreining

x

Heimili og skóli

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.