Heimili og skóli - 01.10.1947, Síða 11

Heimili og skóli - 01.10.1947, Síða 11
HETMILI OG SKÓLI 101 hamla því, að hver maður geti rækt það starf, sem honum hæfir bezt. Til búskapar þarf jörð og bústofn, og at- vinna sjómannsins er oft rýr til að framfleyta fjölskyldunni. Því vanda- samara sem istarfið er, því sterkari hneigða og þjálfaðri hæfileika krefst það. Oft er langt bóknám nauðsynlegt til undirbúnings. Því neyðist margur til að vinna starf, sem honum lætur illa. Þetta misræmi milli starfshneigða og atvinnumöguleika mun aldrei liverfa að fullu. — Hitt lýsir vöntun á skilningi og ábyrgðarvitund, ef for- eldrar að nauðsynjalausu þrengja barninu inn á starfssvið, sem í engu samsvarar hneigðum þess og hæfileik- um. Margir foreldrar láta í þessu efni stjórnast af hégómagirni og stéttar- hroka og spilla þannig manndómi barna sinna, ræna þau sannri starfs- gleði, en þjóðina beztu starfskröftum þeirra. Slík mistök gætu kennarar að miklu leyti hindrað, ef þeir ræktu vel samvinnu við foreldrana. Frá sjónar- miði þjóðarheildarinnar er það óbæt- anlegt tjón, ef þeir foreldrar, sem hafa beztar ástæður til að veita hæfileikum barna sinna nauðsynlega þjálfun, beina þeim inn á rangar brautir vegna fávizku og hégómagirni. Þjóðfélagið á rétt til að njóta starfskrafta einstakl- ingsins, en einstaklingurinn á því að- eins rétt á starfsmöguleikum þjóð- heildarinnar, að hann leggi fram beztu krafta sína í hennar þágu. c) Við höfum nú séð, hve mikilvægt atriði það er að þroska hneigðir barns- ins sem bezt og beina þeim að starfi, sem svarar til hæfileika þess. Þetta er aðalhlutverk menntgjafans, og sé það vanrækt, getur uppeldið ekki borið til- ætlaðan árangur. Heimili og skóli fá því aðeins leyst þetta viðfangsefni til fulls, að þau í starfi sínu hagnýti sam- eiginlega reynslu og þekkingu. Nýj- ungar uppeldisvísindanna og uppeld- isbragur heimilisins verða að samein- ast til starfa. Foreldrar og kennarar verða að hugðfesta sér það, sem reynsl- an kennir þeim, og finna sem hag- kvæmast form fyrir samvinnu sína. Samstarf þeirra verður að eignast hefð, sem hvílir á reynslu, þekkingu og ein- lægum uppeldisvilja beggja. Hér opn- ast áhugasömum fareldrum og kenn- urum merkilegt starfsvið. Með flestum menningarþjóðum er þegar stofnaður félagsskapur til þess að efla uppeldis- menningu foreldra og gera lærdóms- ríka uppeldisreynslu þeirra heyrin- kunna. Áhugasamir kennarar beitast mjög fyrir slíkum samtökum, en fyrir- lestrar, umræður, tímarit og bækling- ar dreifa þekkingu út á meðal félags- manna og flytja einfaldar frásagnir af uppeldisreynslu foreldra og kennara. Slík rit geta orðið leitandi menntgjafi ótæmandi fróðleiksbrunnur. Myndi kennurum það mikill styrkur í sam- vinnu þeirra við foreldra, ef þeir hefðu á takteinum dæmi úr uppeldisreynslu heimilisins sjálfs, til að skýra og sanna •með mál sitt. Foreldrar eru yfirleitt ekki nýjungagjarnir á sviði uppeldis- ins, jafnvel þótt þeim liggi það mjög á hjarta. Er því oft nauðsynlegt að færa þeim mikilsvarðandi uppeldisnýjung- ar í búningi þeirra eigin reynslu, ef þær eiga að mæta æskilegum skilningi. Flestar nýjungar uppeldisvísindanna eru fundnar með athugunum á upp- eldisstarfi foreldra og börnum þeirra. Uppeldisfræðingurinn vill beina huga

x

Heimili og skóli

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.