Heimili og skóli - 01.10.1947, Page 12

Heimili og skóli - 01.10.1947, Page 12
1-2 HEIMILI OG SKÓLl foreldra að þeirra eigin starfi, sýna þe.m, hvenær þeim hafi tekizt vel og hvenær illa, hverjar aðferðir þeir eigi beztar og hverjar lakastar. Þannig læra foreldrar í raun og veru af sjálfum sér, ef þeir hugleiða uppeldisreynslu sína og annarra og gagnrýna aðferðir sínar í Ijósi uppeldisvísindanna. Það er hlut- verk kennarans að vekja foreldra til þes-sarar íhygli. III Það leiðir beint af því, sem að ofan var sagt um samstarf heimilis og skóla, að bæði bera ábyrgð á, hvernig það tekst. Hvorugt getur með öllu skellt skuldinni á hitt, þótt annað kunni stundum að eiga meiri sök á misfell- unum. En samvinnan er m. a. í því fólgin, að foreldrar og kennari leið- rétti misskilning og mistök hvers ann- ars viðvíkjandi barninu og uppeldi þess. Þetta getur því aðeins tekizt, að bæði eigi fullan skilning á því, hve mikilvægt og vandasamt uppeldið er, en auk þess næga hógværð til að láta benda sér á villur sínar. Slík hógværð er ekki öllum gefin, og mun mörgum veitast torvelt að temja sér hana. En menntgjafinn verður ávallt að minn- ast þeirrar ábyrgðar, sem hann ber á uppeldi bamsins. Hún hvílir sameig- inlega á foreldrum og kennurum, bæði gagnvart hverju einstöku barni og þjóðféiaginu. Hvert barn á rétt til að ná sem fyllstum andlegum og líkam- legum þroska. Og þjóðin krefst þess með réttu, að hver einstaklingur verði sem nýtastur þegn í samfélagi hennar. Með því að gefa sig að uppeldisstarf- inu, hafa foreldrar og kennari helgað sig æðri skyldu, sem krefst einlægs vilja þeirra. Ef þeir hafa fullan skiln- ing á möguleikum uppeldisins, mun viðleitni þeirra sigrast á flestum erfið- leikum. En skorti þennan skilning, munu hégómagirni og sérvizka jafn- an bera betri viðleitni ofurliði. Þá er oft um enga samvinnu að ræða; við- leitni annars strandar á mótþróa hins, eða hvorugt finnur löngun til sam- starfs. Þeir létu ekki kúga sig. Tveir kennarar, annar danskur, en hinn norskur, hittust fyrir skömmu af tilviljun uppi í háfjöllum Noregs og tóku tal saman. Viðræðurnar snerust fyrst um norsk og dönsk skólamál, en svo barst talið að hernámi Noregs. „Okkur Dönum er kunnugt um hina hetjulegu baráttu norsku kenn- aranna gegn nazismanum meðan á hernáminu stóð,“ mælti Daninn. „Já, þú mátt vera viss um, að við hötuðum þá af öllu hjarta allt það, sem var þýzkt,“ mælti Norðmaðurinn. „Og nú skal ég segja þér litla sögu, sem gerðist í Osló árið 1943. Þjóðverj- ar höfðu þá undirbúið svokallaða „Menningarsýningu“ og einn sýning- ardaginn voru þau boð látin út ganga til skólanna í Osló, að börnin ættu að koma á sýninguna. Börnin komu og gengu ásamt bekkjarkennurum sínum í gegnum sýningarstofurnar, en með lokuð augun. Umsjónarmenn þýzku sýningarinnar nístu tönnum af vonzku, en við þessu kunnu þeir eng- in ráði. Þeir urðu að horfa á börnin

x

Heimili og skóli

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.