Heimili og skóli - 01.10.1947, Blaðsíða 24
114
HEIMILI OG SKÓLI
r'
Ur /msum áttum
Fundur presta og kennara.
Fundur presta og kennara norðanlands var
haldinn á Akureyri dagana 20. og 21. septem-
ber sl. Fundurinn hafði verið undirbúinn af
nefnd presta og kennara í Þingeyjarsýslu, en
iormaður þeirrar nefndar var séra Björn O.
Björnsson prestur á Hálsi. Aðalumraeðuefni
íundarins var ÞEGNHOLLUSTA. Um þetta
voru flutt þrjú framsöguerindi. Erindin
fluttu Þorsteinn M. Jónsson skólastjóri, séra
Björn O. Björnsson og Þórgnýr Guðmunds-
íon kennari. Ýmis fleiri mál voru rædd á
lundinum og urðu um þau miklar umræður.
jón H. Þorbergsson flutti einnig erindi um
heimilisguðrækni. í sambandi við fundinn
íór fram guðsþjónusta í Akureyrarkirkju og
prédikaði séra Sigurður Guðmundsson að
Grenjaðarstað, en séra Ingólfur Þorvaldsson
prestur í Ólafsfirði þjónaði fyrir altari. Loks
flutti séra Pétur Sigurgeirsson erindi um
kristilega æskulýðsstarfsemi og sýndi kvik-
mynd. Fundurinn gerði margar ályktanir, en
ekki er rúm til að geta þeirra hér.
Kenn&rafundur.
Haustfundur Kennarafélags Eyjafjarðar
var haldinn á Akureyri laugardaginn 4. okt.
sl. Hið helzta, sem gerðist á fundinum var
þetta: Eiríkur Sigurðsson flutti erindi og
sagði ýmsar skólafréttir frá Danmörku, en þar
dvaldist hann nokkurn tíma í sumar. Þá
flutti Snorri Sigfússon langt og ýtarlegt erindi
um viðhorf i skólamálum, bæðiáNorðurlönd-
um og hér, og ræddi í því sambandi um fram-
kvæmd nýju fræðslulaganna okkar og ýmis
verkefni, sem framundan væru. Loks sagði
Sigríður Skaptadóttir kennslukona skólafrétt-
ir frá Sviþjóð, en þar dvaldi hún við fram-
haldsnám síðastliðið ár. Sagði hún einkum
frá skólanum að Nesi og starfsemi hans. Sýndi
hún í því sambandi teikningar og aðra skóla-
vinnu frá námskeiði þar. Var mikið að græða
á öllum þessum erindum og gerður að þeim
góður rómur. Fundurinn var fjölmennur og
voru þarna mættir flestir kennarar af félags-
svæðinu. Fundarstjóri var Steingrímur Bern-
harðsson, skólastjóri á Dalvík, en fundarritari
Björn Daníelsson, Dalvík.
Kennaranámskeið.
Dagana 15. til 20. sept. var haldið í Reykja-
vík námskeið fyrir íþróttakennara og al-
menna kennara, sem kenna íþróttir í skólum.
í námskeiðinu tóku einnig þátt nemendur
uppeldisskóla Sumargjafar.
Alls urðu þátttakendur 62. Kennslugreinar
voru: Farið yfir tímaseðla fyrir stúlkur og
pilta, dansleikfimi, frjálsar íþróttir, leikir og
þjóðdansar.
Kennarar voru: Aðalsteinn Hallsson, Bjarni
Bachmann, Björn Jakobsson, Bragi H. Magn-
ússon og Sigríður Þ. Valgeirsdóttir. Námskeið-
ið setti Þorsteinn Einarsson með ræðu, en fyr-
irlestra fluttu: Sigríður Þ. Valgeirsdóttir:
íþróttir í amerískum skólum; Jón Oddgeir
Jónsson: Nýjungar í lífgunaraðferðum og
umferðakennsla; Gunnar Ólafsson: Skóla-
íþróttafélög, skólamerki og frjálsar íþróttir í
skólum; Unnur Jónsdóttir: Fimleikar með
músík.
Vegna ýmissa nýjunga í skólaíþróttum var
um það rætt að stofna næsta sumar til lengra
námskeiðs, en þá helzt utan Reykjavíkur.
í vikutíma, í byrjun okt., kenndi Sigríður
Þ. Valgeirsdóttir þjóðdansa við Húsmæðra-
skóla íslands.
Sundkennarar í Reykjavík komu saman á
þrjá fundi í byrjun okt., til þess að ræða mál-
efni varðandi sundkennsluna í Reykjavik.
Samþykktar voru tillögur til úrbóta sund-
aðstöðu skólanemenda og samið bréf, m
sent verður bæjar- og skólayfirvöldum og
einnig dagblöðum bæjarins, til þess að vekja
athygli á hinni slæmu sundaðstöðu og vinna
að því, að reistar verði kennslulaugar.