Heimili og skóli - 01.02.1949, Qupperneq 7

Heimili og skóli - 01.02.1949, Qupperneq 7
HEIMILI OG SKÓLI 3 skólunum. Annars verður í þessu greinarkorni lítið farið inn á skoðanir Hannesar í uppeldismálum, en vísast í því efni til hinna mörgu greina, sem hann hefur ritað í þetta tímarit. Þó skal drepið á eitt í þessu sam- bandi, sem lýsir manninum vel. Ég hygg, að uppáhaldsnámsgrein Hannes- ar sé kristin fræði. Hann er sjálfur trúhneigður og telur réttilega, að ef þeim þætti sálarlífsins sé ekki gaumur gefinn, vanti einhvern mikilvægasta þáttinn í uppeldið. En frjálslyndur og fordómalaus er hann í trúarefnum. Hann hefur ekki aðeins haldið við morgunbænum þeim, sem Snorri Sigfússon liafði tekið upp í Barna- skóla Akureyrar á hverjum mánu- dagsmorgni fyrir eldri börnin, heldur hefur hann aukið þær svo, að þær nái einnig til hinna yngri barnanna. Er það í fyllsta samræmi við skoðanir Jians. Þess var áðan getið, að Hannes hafi lagt mörgum góðum málum lið. Af félagsmálum vil ég fyrst nefna Góð- templararegluna. Hann er mjög einlægur bindindis- maður og hefur unnið mikið fyrir bindindismálið bæði með félagsstörf- um og fjölda greina, sem hann hefur ritað um það. Það ræður því af líkum, að á hann hafa hlaðizt mörg trúnaðar- störf í Reglunni. Hann hefur verið í framkvæmdanefnd Umdæmisstúkn Norðurlands síðan hann kom til Akureyrar. Og í 7 undanfarin ár hef- ur hann verið Stórgæzlumaður ung- lingastarfs í Stórstúku íslands. Farn- aðist Unglingareglunni vel undir stjórn hans. Sjálfur hefur hann verið gæzlumaður í barnastúku alla sína kennaratíð, fyrst í Fáskrúðsfirði og svo hér á Akureyri. Hefur honum fundizt, að börnin mættu ekki fara á mis við þau siðgæðisáhrif, sem góð barnastúka hefur. Annars eru afskipti Hannesar af Reglunni á Fáskrúðsfirði gott dæmi um áhrif hans fyrir Regluna og bind- indismálið. Á þeim 6 árum, er hann dvaldi þar, stofnaði hann þar bæði barnastúku og undirstúku, en áður var þar enginn bindindisfélagsskapur. Reglan byggði sér samkomuhús á þess- um árum, og barnastúkan kom sér upp góðu bókasafni, er hún gaf barna- skólanum við brottför Hannesar. Allt þetta starf féll niður skömmu eftir, að Hannes fór þaðan. Það hefur verið drepið á, hve far- sæll æskulýðsleiðtogi Hannes hefur verið í skólanum og Reglunni. En hann þráði einnig að ná til fleiri barna með hinu ritaða orði og boða þeim það, sem gott var og fagurt. Árið 1932 stofnaði hann barna- blaðið „Vorið“. Komu út af því fjórir árgangar til ársloka 1935. Útgáfan féll þá niður um sinn. En 1939 hóf hann útgáfu blaðsins á ný ásamt þeim, er þessar línur ritar, og hafa nú komið út af blaðinu fjórtán árgangar. Ekki skal hér lagður neinn dómur á þetta sameiginlega verk okkar Hann- esar, en benda má á það, að vinsældir blaðsins og kaupendafjöldi hafa stöð- ugt farið vaxandi. Og betri samstarfs- mann í því efni get ég vart hugsað mér. En auk þess, sem Hannes hefur rit- að af barnasögum í „Vorið“, hefur hann þýtt allmargar barnabækur. Og síðast en ekki sízt skal hér minnzt

x

Heimili og skóli

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.