Heimili og skóli - 01.02.1949, Side 11

Heimili og skóli - 01.02.1949, Side 11
HEIMILI OG SKÓLI 7 Skólabörn í Húsavík við gróðursetningv. saka, tókst félaginu ekki að fá girðing- arefni fyrr en á síðastliðinu vori, og þá af skornum skammti. Brá samt félagið tafarlaust við og kom sér upp girðingu úr því litla efni, sem til náðist. Girð- ingin er hringgirðing, ca. 2 km að lengd, og er við svonefnt Botnsvatn, sem er skammt sunnan og ofan við kauptúnið. Skapaðist þá aðstaða til skógræktar, utan kauptúnsins, í fyrsta sinni í sögu þess. — Skógræktarfélagið var svo vinsamlegt að veita barnaskól- anum strax svigrúm til starfa í hinum nýfriðaða reit sínum, og láta honum jafnframt í té nokkur hundruð plönt- ur til gróðursetningar. Með tilliti til þessa vinarbragðs skógræktarfélagsins, sem alltaf hafði sýnt þessum málum mikinn skilning, og jafnframt með samþykkt uppeldismálaþingsins í huga, var ákveðið að barnaskólinn hæfist handa við hentugt tækifæri. Miðvikudagurinn 16. júm varð fyr- ir valinu. Veður var stillt og bjart, en svalt, eins og oftast á síðastliðnu vori. Klukkan 14 hittust þrír kennarar og öll fullnaðarprófsbörnin, sem til náð- ist, á ákveðnum stað í þorpinu. Allir voru búnir eins og í gönguför, höfðu nestisbita, og báru margir rekur. Þeg- ar fullvíst þótti, að allir væru komnir, var stigið upp í bifreið, sem flutti hóp- inn meiri hluta leiðarinnar. í bifreið- inni var glatt á hjalla, sungið og spaug- að. Er komið var á áfangastað, við hið fagra og friðsæla Botnsvatn, var skýrt nákvæmlega fyrir börnunum, hvernig vinna ætti verkið og jafnframt rætt um skógræktarmálin yfirleitt með nokkr- um orðum. Að því loknu var hafizt handa, og var auðsætt, að börnin höfðu yndi af starfinu. Má segja, að tæpast hafi verið litið upp frá verkinu, fyrr en búið var að gróðursetja fimm

x

Heimili og skóli

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.