Heimili og skóli - 01.02.1949, Side 17

Heimili og skóli - 01.02.1949, Side 17
HEIMILI OG SKÓLI 13 Lestrarbekkjastarfið í Kaupmannahöfn Eftir Rasmus Jakobsen Starfsemi þessara bekkja hófst árið 1935 með stofnun tveggja lestrar- bekkja. Síðan hefur börnum lestrar- bekkjanna farið sífjölgandi og í ár eru í Kaupmannahöfn 99 lestrarbekkir með alls 1600 börnum. I fyrri' hluta annars skólaárs er venjulega hægt að ganga úr skugga um, hvort um svo alvarlega stöfunar- eða lestrarörðugleika sé að ræða, að barnið þurfi að fara í lestrarbekki. Mikils er um vert, að gallarnir komi í ljós á þessu stigi, því að aðstoðin kem- ur að því meira gagni, sem hún hefst fyrr og þeim mun síður er hætt við sálrænum truflunum sökum lestrar- örðugleika. Allir kennarar, sem kenna í 2. bekk, eru því hvattir til að láta skólasál- fræðiskrifstofuna rannsaka öll börn, sem þeir hafa grun um, að eigi við lestrarörðugleika að etja. Börn úr efri bekkjunum má að sjálfsögðu einn- ig senda til rannsóknar. af annarri. Þetta var tvöföld nautn. Fyrst var að hæfa vel, og svo var bless- að skvampið. En gallinn var sá, að vatnið vildi skvettast út um allt gólf. En mamma fyrirgaf mér þetta. „Nú ertu að skvetta vatni, strákur," sagði hún. En það var ekki til þess að ávíta mig eða banna mér, heldur eins og til þess að taka þátt í ánægju minni. Þess konar heyra börn svo vel. í stað þess að æfa mig á pappaskurði og leirhnoði, var mín handavinna í því fólgin, að fást við leður og kart- öflur. Á þessu lærði ég að fara með hníf og bursta. Dygðir, eins og vandvirkni og ná- kvæmni, urðu mér tamar við þetta. Spyrjið bara skósólana og „augun“ á karöflunum. En vitið þið, hvað mér sárnar mest? Þó að ég sé meistari í þess- um greinum, þá fæ ég ekki að taka neitt próf í þeim. Ég verð endilega að kunna að skera pappa, en ekki kartöfluhýði. Og svo kann ég ekkert til hand- anna, en hinir allt. Ég fæ heldur enga aukagetu fyrir mína kunnáttu. Það eru ekki til neinar skóbursturn- ar- eða kartöfluflysjunar-einkunnir. Þeir háu herrar í bæjarstjórninni kæra sig ekki um gljáandi skó eða flysjaðar kartöflur. Þeir eru hamslaus- ir í pappaöskjur og hnoðaðar leirkart- öflur. Fyrir þess konar opna þeir hjörtu sín og peningapyngjur, og horfa þá ekki í skildinginn. Hvað skyldi mamma mín hafa sagt í þessu sambandi? „Vert þú ánægður, drengur minn. Þú hefur hjdlpað mömmu þinni.“ Egill Þórláksson þýddi.

x

Heimili og skóli

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.