Heimili og skóli - 01.02.1949, Blaðsíða 19
‘
HEIMILI OG SKÓLI
Kennaranámsskeiðið að Hólum i Hjaltadal sumarið 1948.
bíða unz skólaári lýkur og flytjast þá t.
d. úr 5. almenna bekk í 6. lestrarbekk.
Venjulega glatast ekkert skólaár við,
að börn flytjast í lestrarbekk. í lestrar-
bekkjunum eru kenndar allar sörnu
námsgreinar og í almennum bekkj-
um. Barn, sem tekur góðum framför-
um í lestri, getur því farið yfir í al-
menna skólann án þess að missa neitt
úr.
Oft kemur það þó fyrir, að þótt
börnunum fari fram í að stafa og lesa,
geta þau ekki lært sama námsefni og
jafnaldrar þeirra og verða því aftur
úr.
Það er enginn fjárhagslegur hagnað-
ur fyrir kennara að taka að sér þessa
erfiðu kennslu, aðeins eru 4 kennslu-
stundir í lestrarbekk reiknaðar sem 5
í almennum bekk.
Börn lestrarbekkjanna taka miklum
framförum, þær birtast ekki aðeins í
því,að mörg börn fara í almennu bekk-
ina á ný, heldur einnig hinu, að þau
börn, sem eru í lestrarbekkjunum
námstímann út, ná miklu meiri ár-
angri en þau myndu gera, ef þau
lengju enga sérkennslu. En auk lestr-
arleikninnar, sem ávinnst í þessum
bekkjum, batnar sálræna ástandið að
miklum mun. Börn, sem aldrei hafa
séð neinn árangur af starfi sínu og